Rétt rúm 10% telja að vel gangi hjá stjórninni

Morgunblaðið segir frá nýrri könnun Gallup sem sýnir mikla óánægju landsmanna með frammistöðu ríkisstjórnarinnar í baráttunni við verðbólgu og háa vexti.

Samkvæmt könnuninni telja 69% að ríkisstjórnin standi sig illa við að ná niður verðbólgu en aðeins 12% telja hana standa sig vel. 19% svara hvorki né.

Niðurstaðan er svipuð þegar spurt er um vextina. Þar telja 70% að ríkisstjórnin standi sig illa við að stuðla að lægri vöxtum, aðeins 10% telja hana standa sig vel og 20% svara hvorki né.

Morgunblaðið segir niðurstöðurnar fela í sér „afgerandi falleinkunn“ hjá þorra landsmanna. Óánægjan nær jafnframt inn í raðir stuðningsmanna stjórnarflokkanna. Aðeins um þriðjungur kjósenda Samfylkingarinnar telur ríkisstjórnina standa sig vel í efnahagsstjórninni og enn færri meðal kjósenda Viðreisnar og Flokks fólksins.

Könnun Gallup var gerð 13.–24. ágúst. Í úrtakinu voru 1.952 manns, 747 svöruðu og svarhlutfallið var 38,3%.