Reiner Füllmich: Bráðum tekur þetta enda

Þýski lögmaðurinn Reiner Füllmich, sem hefur setið í gæslu og fangelsi í Þýskalandi frá október 2023 vegna fjárdráttarmáls sem enn er til meðferðar fyrir dómstólum, birti í lok maí opið bréf þar sem hann heldur því fram að mál hans sé ekki hefðbundið sakamál heldur dæmi um pólitískar ofsóknir. Ný skjöl sem hafa verið birt munu sanna mál hans.

Bréfið er bæði persónuleg frásögn og pólitísk yfirlýsing þar sem Füllmich setur mál sitt í samhengi við gagnrýni sína á viðbrögð stjórnvalda við Covid-19, Evrópusambandið og það alþjóðlega valdakerfið eða „djúpríkið“. Füllmich segir að fulltrúi tengdur heilbrigðisráðuneyti Bandaríkjanna undir stjórn Robert F. Kennedy Jr. hafi heimsótt sig í fangelsið 19. maí. Að hans sögn hafi það leitt til nánara samstarfs milli varnarteymis hans og aðila í Bandaríkjunum. Hann túlkar þetta sem hluta af nýrri stefnu bandarískra stjórnvalda sem hann telur beinast gegn spillingu innan Evrópusambandsins og til stuðnings einstaklingum sem hafi sætt refsingu fyrir að gagnrýna Covid-stefnu stjórnvalda.

Hluti bréfsins snýst um brottnám Füllmich í Mexíkó árið 2023. Hann fullyrðir að þýsk stjórnvöld hafi kosið að fara fram hjá hefðbundnu framsalsferli og hafi í staðinn fengið mexíkósk yfirvöld til að flytja hann til Þýskalands með því að láta aðgerðina líta út sem brottvísun. Füllmich skrifar að þetta sýni að yfirvöld hafi ekki talið sig geta byggt mál sitt á venjulegum lagalegum grunni.

Tilbúnar ákærur

Füllmich skrifar að ákærur um fjárdrátt hafi frá upphafi verið byggðar á röngum eða tilbúnum forsendum. Ákæruvaldið hefur margsinnis þurft að breyta sakarefninu, þegar fyrri ásakanir stóðust ekki skoðun. Hann segir jafnframt að honum hafi ekki verið gefið eðlileg tækifæri til að verja sig gegn nýjum ákæruliðum. Hann bendir á að hann hafi aldrei áður verið sakfelldur fyrir refsiverðan verknað og telur dóminn sem hann hlaut vera ósanngjarnan í samanburði við aðra dóma í þýsku réttarkerfi.

Füllmichs telur að raunveruleg ástæða kærunnar sé vegna rannsókna hans á Covid-19 og gagnrýni á viðbrögðum stjórnvalda. Hann skrifar að vitneskja um störf hans hafi náð til milljóna manna um allan heim og að niðurstöður rannsókna hans hafi reynst óþægilegar fyrir stjórnvöld og áhrifamikla hagsmunaaðila. Að hans mati hafi markmiðið verið að þagga niður í honum áður en gagnrýni hans næði enn frekari útbreiðslu. Füllmich nefnir einnig önnur mál sem hann telur að séu dæmi um blekkingar gagnvart almenningi til dæmis loftslagsmál og innflytjendamál í Evrópu, stríðin í Úkraínu og á fleiri stöðum. Hann skrifar:

„Ef fólk áttar sig á því að „faraldurinn“ hafi verið risastór lygi sem ætlað var að fækka mannkyninu og gera eftirlifendur að stafrænum þrælum, mun það einnig vilja vita um hvað annað það hefur verið blekkt.“

Þúsund spurninga og fáein svör

Segir þúsundir lækna og sérfræðinga hafa sætt ofsóknum

Füllmich heldur því fram að ekki aðeins hann sjálfur heldur fjölmargir læknar, vísindamenn og aðgerðasinnar hafi sætt refsiaðgerðum vegna gagnrýni sinnar á Covid-stefnuna. Hann nefnir dæmi um lækna sem hafi misst starfsleyfi eða tekjur og einstaklinga sem hafi verið útilokaðir frá opinberri umræðu. Allt eru þetta dæmi um kerfisbundna kúgun sem nái langt út fyrir hans eigið mál.

Nýtt atriði snýr að skjölum sem fengust frá þýskum stjórnvöldum eftir beiðnir um upplýsingar. Füllmich segir að skjölin hafi áður verið haldið leyndum en að hluti þeirra hafi nú verið afhentur. Segir hann að skjölin sýni að innanríkisráðuneytið, öryggisþjónustan og alríkislögreglan hafi gegnt lykilhlutverki í aðgerðunum gegn honum. Þótt stór hluti gagnanna sé yfirstrikaður með svörtu, þá staðfesta skjölin grun um pólitískar ofsóknir.

Gagnrýnir þýska öryggisþjónustu og stjórnmálakerfið

Füllmich heldur því fram að þýska öryggisþjónustan hafi í auknum mæli verið notuð sem pólitískt tæki gegn stjórnarandstöðunni. Hann nefnir sérstaklega Valkost fyrir Þýskaland, AfD, og segir yfirvöld hafa beint sjónum að flokknum og gagnrýnum stjórnarandstæðingum. og að lýðræðislegar stofnanir í Þýskalandi séu farnar að beita valdníðslu.

Füllmich telur að mál hans geti orðið mikilvægt fordæmi fyrir aðra sem telja sig hafa orðið fyrir pólitískum ofsóknum. Hann segir að ef honum tekst að sýna fram á að ákærurnar voru yfirskin og pólitískar aðgerðir, þá gæti það hjálpað öðrum í Evrópu, Bretlandi, Kanada, Ástralíu og Nýja-Sjálandi sem telja sig hafa sætt sambærilegri meðferð.

Bjartsýnn þrátt fyrir fangelsisvist

Þrátt fyrir harða gagnrýni á stjórnvöld er lokatónn bréfsins bjartsýnn. Füllmich segir að sífellt fleiri geri sér grein fyrir því sem hann telur raunverulegt eðli málsins og að yfirvöld geti ekki lengur haldið upplýsingum leyndum.

Hann segist vera sannfærður um að fleiri gögn muni koma fram, að málið verði tekið fyrir af dómstólum og að sannleikurinn muni að lokum verða opinber og öllum ljós.