Refsiaðgerðirnar gegn Rússlandi eru GAGNSLAUSAR – þær leggja aðeins efnahag Evrópu í rúst

Refsiaðgerðirnar gegn Rússlandi eru gagnslausar, segir þýska vinstristjórnmálakonan Sahra Wagenknecht.

Leiðtogar Evrópu hafa misst vitið, að mati Sahru Wagenknecht, leiðtoga þýska flokksins BSW.

Tilefnið er samkomulag Bandaríkjanna við Rússland um dísilolíu. Hún telur að Evrópa ætti einnig að gera slíkt samkomulag og hætta refsiaðgerðum gegn Rússlandi, sem hún segir gagnslausar.

„Þetta er alveg galið: Bandarísk stjórnvöld eru nú aftur farin að flytja inn dísilolíu frá Rússlandi til að lækka eldsneytisverð sem hefur rokið upp hjá bandarískum neytendum. En þýska ríkisstjórnin heldur þrjóskulega fast við gagnslausar refsiaðgerðir sem stefna efnahag okkar í hrun og gera borgarana sífellt fátækari. Hættið þessu!“ skrifar Wagenknecht á X og heldur áfram:

„Bensínverðið er enn skammarlega hátt. Þýskaland þarf líka samkomulag við Rússland um dísilolíu og að hefja á ný innkaup á rússneskri olíu og gasi almennt! Án ódýrrar orku frá Rússlandi verður ekki hægt að stöðva hnignun iðnaðar okkar.“