Þegar umræðan snýst um Evrópusambandið er gott að hafa í huga hvar rætur þessa félagsskapar liggur. Það hefur lítið verið rætt eða ritað um upphafið og sennilega verið haldið leyndu fyrir almenningi af ásettu ráði. Jóhann Elíasson viðskiptafræðingur vildi þó skoða málið og kynna sér hvaðan þessar hugmyndir voru sprottnar. Það runnu tvær grímur á Jóhann þegar í ljós kom að Evrópusambandið var skilgetið afkvæmi ógnarstjórnar nasismans frá því um miðbik síðustu aldar.
Jóhann ritaði bækling um niðurstöður sínar sem ber nafnið Upphaf og Saga ESB, þar sem hann rekur þróunarsögu ESB frá tíma nasismans fram á vora daga og einnig ættir framámanna sambandsins eins og til dæmis Ursula von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar sambandsins en faðir hennar var í fyrstu framkvæmdastjórn EBE undir stjórn Walter Hallstein, sem hafði verið hagfræðiprófessor við háskólann í Rostoc á stríðsárunum og ráðgjafi nasista í efnahagsmálum og meðlimur í nasistaflokknum.
Hér er hægt að lesa bæklinginn.
