Frú forseti, góðir gestir.
Fyrir áttatíu árum lauk skelfilegasta stríði mannkynssögunnar. Meira en sjötíu milljónir manna létu lífið í átökum, hungursneyð og sjúkdómum. Árið 1945 breyttist gangur mannkynssögunnar til frambúðar. Sigurinn yfir þýska nasismanum, sem stærstur hluti Evrópu hafði fylkt sér undir merkjum, og japanskri hernaðarhyggju ruddi brautina fyrir frið, endurreisn og hagsæld.
Á þessu ári voru haldnar hátíðarathafnir í Moskvu og Peking í tilefni hátíðisdaganna 9. maí og 3. september, til að minnast sigursins í föðurlandsstríðinu mikla og síðari heimsstyrjöldinni. Heimurinn varð vitni að stórfenglegum hersýningum þar sem minnst var úrslitaframlags þjóða Sovétríkjanna til ósigurs nasista í Þýskalandi og sérstaks hlutverks kínversku þjóðarinnar í sigrinum á japönsku herveldisstefnunni.
Við heiðrum af djúpri lotningu minninguna um bræðralag okkar í vopnum við alla bandamenn okkar sem stóðu með sannleikanum í baráttunni gegn öflum hins illa.
Ein varanlegasta niðurstaða þess stríðs var stofnun Sameinuðu þjóðanna. Meginreglur sáttmála þeirra, sem stofnendur samtakanna komu sér saman um, eru enn leiðarljós alþjóðlegrar samvinnu. Þær fela í sér aldalanga reynslu af sambúð ríkja og halda fullu gildi sínu á tímum fjölpóla heimsskipanar.
Það eina sem eftir stendur er að öll aðildarríki, án undantekningar, fylgi þessum meginreglum að fullu, í heild sinni og með tilliti til innbyrðis tengsla þeirra.
Hagsmunir hins svo kallaða gullna milljarðs
Í framkvæmd er staðan þó önnur. Útbreidd og gróf brot á meginreglunni um jafnræði fullvalda ríkja grafa undan trúnni á sjálft réttlætið og leiða til kreppuástands og átaka.
Rót vandans liggur í linnulausum tilraunum til að skipta heiminum í okkur og hina; lýðræðisríki og einræðisríki; blómlegan garð og frumskóg; þá sem sitja við borðið og þá sem eru á matseðlinum; hina útvöldu, sem mega allt, og alla hina, sem af einhverjum ástæðum eiga að þjóna hagsmunum hins svokallaða gullna milljarðs.
Við berjumst fyrir skilyrðislausri virðingu fyrir jafnræðisreglunni. Hún tryggir að öll ríki geti tekið sér réttmætan sess í heimsskipaninni, óháð hernaðarmætti, íbúafjölda, stærð landsvæðis eða efnahags.
Vesturlönd hafa einnig ítrekað brotið gegn meginreglunni um að beita hvorki valdi né hótunum um valdbeitingu. Loftárásir NATO á Júgóslavíu, innrás bandalags undir forystu Bandaríkjanna í Írak og hernaðaraðgerð NATO til stjórnarskipta í Líbíu enduðu allar með hörmungum.
Palestínuspurningin
Í dag ógnar ólögleg valdbeiting Ísraels gegn Palestínumönnum og árásaraðgerðir þess gegn Íran, Katar, Jemen, Líbanon, Sýrlandi og Írak því að kveikja í öllum Mið-Austurlöndum.
Rússland fordæmdi eindregið árás liðsmanna Hamas á ísraelska borgara 7. október 2023. Engin réttlæting er hins vegar fyrir hrottalegum drápum á óbreyttum borgurum í Palestínu, rétt eins og engin réttlæting er fyrir hryðjuverkaárásum.
Engin réttlæting er heldur fyrir sameiginlegri refsingu Palestínumanna á Gaza, þar sem palestínsk börn deyja af völdum sprengjuárása og hungurs, sjúkrahús og skólar eru eyðilögð og hundruð þúsunda missa húsaskjól sitt.
Engin réttlæting er fyrir áformum um innlimun Vesturbakkans. Í raun stöndum við frammi fyrir eins konar valdaránstilraun sem miðar að því að grafa ákvarðanir Sameinuðu þjóðanna um stofnun palestínsks ríkis.
Nýlega tilkynntu nokkrar vestrænar ríkisstjórnir að þær viðurkenndu Palestínuríki. Þær höfðu raunar lýst yfir þeim ásetningi nokkrum mánuðum áður. Þá vaknar spurningin: Hvers vegna biðu þær svo lengi?
Svo virðist sem þær hafi vonast til þess að þegar allsherjarþingið kæmi saman væri ekkert og enginn eftir til að viðurkenna. Ástandið krefst tafarlausra aðgerða til að koma í veg fyrir slíka niðurstöðu, eins og þátttakendur á alþjóðlegu ráðstefnunni á æðstu stigum um Palestínu lögðu ríka áherslu á.
Íran, S-Ameríka og Evrópa
Árásirnar á írönsk mannvirki undir eftirliti Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar verðskulda fordæmingu. Sama gildir um árásirnar á höfuðborg Katar á meðan þar fóru fram viðræður við Hamas með þátttöku meðal annars bandarískra sáttasemjara.
Í gær höfnuðu Vesturlönd í öryggisráðinu skynsamlegri tillögu Kína og Rússlands um að framlengja samkomulagið frá 2015 um kjarnorkuáætlun Írans til að gefa diplómatíunni svigrúm. Þar með afhjúpaðist endanlega stefna Vesturlanda um að spilla leitinni að uppbyggilegum lausnum í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og knýja fram einhliða eftirgjöf frá Teheran með fjárkúgun og þrýstingi.
Við teljum slíka stefnu óásættanlega og lítum á allt makkið við að endurvekja refsiaðgerðir Sameinuðu þjóðanna gegn Íran, og refsiaðgerðirnar sjálfar, sem ólöglegt.
Vesturlönd eru ekki vön að virða meginregluna um afskiptaleysi af innanríkismálum annarra ríkja. Litabyltingarnar eru orðnar dapurlegt einkenni samtímans og ólöglegar einhliða refsiaðgerðir hafa fyrir löngu orðið helsta verkfæri vestrænnar diplómatíu.
Hvaða afsakanir sem notaðar eru til að réttlæta þær er eðli slíkra refsiaðgerða hið sama: Að bæla niður og hræða keppinauta á sviði efnahags- og stjórnmála heimsins.
Rússland krefst þess, ásamt yfirgnæfandi meirihluta aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna, að viðskiptabanninu gegn Kúbu, sem hefur staðið í meira en sextíu ár, verði tafarlaust aflétt án skilyrða og að landið verði tekið af hinum alræmda lista yfir ríki sem styðja hryðjuverk.
Við lýsum yfir samstöðu með þjóð Venesúela gagnvart erlendum refsiaðgerðum, þrýstingi og hótunum. Við berjumst fyrir því að Rómanska Ameríka og Karíbahafssvæðið verði áfram svæði friðar og samvinnu.
Skýrt dæmi um hvernig grafið er undan fullveldi og gróflega gripið inn í innanríkismál eru aðgerðir Vesturlanda á Balkanskaga. Þar er brotið gegn þeirri grundvallarreglu að öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna skuli fara að ákvörðunum öryggisráðsins.
Einhliða viðurkenning á sjálfstæði Kósóvó, þvert á ályktun 1244, var í raun árás á ríkisskipan Serbíu. Nú hafa Vesturlönd tekið stefnu á að grafa undan Bosníu og Hersegóvínu sem ríki með því að spilla Dayton-friðarsamkomulaginu.
Bæði í Kósóvó og Bosníu er ráðist á grundvallarhagsmuni serbnesku þjóðarinnar, þar á meðal söguleg réttindi serbnesku rétttrúnaðarkirkjunnar.
Úkraína
Með svipuðum hætti hefur stjórnin í Kænugarði, sem komst til valda í stjórnarskrárbroti með valdaráninu sem Vesturlönd skipulögðu árið 2014, tekið stefnu á að útrýma hinni kanónísku úkraínsku rétttrúnaðarkirkju og uppræta rússneska tungu með lagasetningu á öllum sviðum: í menntun, menningu og fjölmiðlum.
Úkraína er eina ríki heims sem hefur bannað með lögum notkun móðurmáls nærri helmings íbúa sinna. Arabíska er ekki bönnuð í Ísrael og hebreska er ekki bönnuð í arabaríkjunum eða Íran. En rússneska er bönnuð í Úkraínu.
Ég minni á að í fyrstu grein sáttmála Sameinuðu þjóðanna er kveðið á um virðingu fyrir mannréttindum og grundvallarfrelsi allra, án tillits til kynþáttar, kyns, tungumáls eða trúarbragða.
Evrópa þegir um þetta, heltekin af því óraunhæfa markmiði að valda Rússlandi hernaðarlegum og pólitískum úrslitaósigri. Í því skyni er úkraínsku stjórninni allt leyft, þar á meðal hryðjuverkaárásir á stjórnmálamenn og blaðamenn, pyntingar, aftökur án dóms og laga, handahófskenndar sprengjuárásir á borgaraleg skotmörk og ófyrirleitnar skemmdarverkaaðgerðir gegn kjarnorkuverum.
Eins og Vladimír Pútín forseti hefur ítrekað lagt áherslu á hefur Rússland verið og er áfram reiðubúið til viðræðna um að uppræta rótarástæður átakanna. Tryggja verður öryggi Rússlands og grundvallarhagsmuni þess með áreiðanlegum hætti. Endurreisa verður að fullu réttindi Rússa og rússneskumælandi fólks á þeim landsvæðum sem verða áfram undir stjórn Kænugarðsstjórnarinnar.
Á þeim grundvelli erum við reiðubúin að ræða öryggistryggingar fyrir Úkraínu. Enn sem komið er virðast hvorki stjórnin í Kænugarði né evrópskir bakhjarlar hennar gera sér grein fyrir alvöru stöðunnar eða vera reiðubúin til heiðarlegra samningaviðræðna.
NATO
Atlantshafsbandalagið heldur áfram að stækka alveg að landamærum okkar, þvert á loforð sem leiðtogum Sovétríkjanna voru gefin um að það færðist ekki eina einustu tommu til austurs.
Þetta gengur einnig gegn þeim skuldbindingum sem aðildarríki NATO tóku á sig innan Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu um að virða meginregluna um ódeilanlegt öryggi, efla ekki eigið öryggi á kostnað annarra og sækjast ekki eftir yfirráðum.
Við höfum ítrekað lagt til við ríkisstjórnir NATO-ríkja að þær virði skuldbindingar sínar og semji um lagalega bindandi öryggistryggingar. Tillögur okkar frá 2008 og síðari tillögur, þar á meðal frá desember 2021, hafa verið hunsaðar og eru það enn í dag.
Þá er í auknum mæli hótað valdbeitingu gegn Rússlandi. Rússland er sakað um að leggja nánast á ráðin um árás á Atlantshafsbandalagið og ríki Evrópusambandsins. Pútín forseti hefur ítrekað vísað þessum ögrandi fullyrðingum á bug.
Rússland hefur aldrei haft og hefur engin slík áform. Sérhver árás á land mitt mun hins vegar mæta afdráttarlausum viðbrögðum. Um það ættu þeir innan NATO og ESB ekki að efast sem segja kjósendum sínum ekki aðeins að stríð við Rússland sé óhjákvæmilegt og neyða þá til að herða sultarólina, heldur ræða jafnframt opinberlega undirbúning árásar á Kalíníngrad-hérað okkar og önnur rússnesk landsvæði.
Við bindum nokkrar vonir við áframhaldandi viðræður Rússlands og Bandaríkjanna, sérstaklega eftir leiðtogafundinn í Alaska.
Í nálgun núverandi Bandaríkjastjórnar sjáum við bæði vilja til að stuðla að raunhæfum leiðum til lausnar á Úkraínudeilunni og áhuga á að þróa raunsætt samstarf án hugmyndafræðilegra fordóma. Rússland og Bandaríkin bera sérstaka ábyrgð á stöðu heimsmálanna og á því að koma í veg fyrir hættur sem gætu steypt mannkyninu í nýja styrjöld.
Nýtt frumkvæði Rússlands, sem Pútín forseti kynnti 22. september, miðar að því að viðhalda stöðugleika í hernaðarlegu jafnvægi. Það felur í sér að Rússland er reiðubúið að halda sig við helstu tölulegu takmarkanir New START-samningsins í eitt ár eftir að hann rennur út 5. febrúar 2026.
Skilyrðið er að Bandaríkin geri slíkt hið sama og grípi ekki til aðgerða sem raska núverandi jafnvægi fælingarmáttar ríkjanna.
Við teljum að framkvæmd tillögu okkar myndi skapa nauðsynlegar aðstæður til að koma í veg fyrir vígbúnaðarkapphlaup með langdræg kjarnorkuvopn, viðhalda viðunandi fyrirsjáanleika á sviði kjarnorkueldflauga og bæta almennt andrúmsloft í samskiptum Rússlands og Bandaríkjanna.
Kæru samstarfsmenn.
Í desember á þessu ári minnumst við þess að 65 ár eru liðin frá því að allsherjarþingið samþykkti yfirlýsinguna um veitingu sjálfstæðis til nýlenduríkja og nýlenduþjóða.
Afnám nýlendukerfisins, þar sem Sovétríkin gegndu leiðandi hlutverki, var bein afleiðing þess að sjálfsákvörðunarréttur þjóða komst til framkvæmda. Þjóðir Afríku og Asíu neituðu að lifa undir oki nýlenduveldanna, rétt eins og Krímskagi, Donbas og Novorossía neituðu eftir valdaránið í Úkraínu árið 2014 að lúta nýnasistastjórninni í Kænugarði, sem hafði ólöglega hrifsað til sín völdin.
Sú stjórn stendur ekki aðeins utan við hagsmuni íbúanna heldur hefur einnig hafið stríð gegn þeim.
Í báðum tilvikum var hrint í framkvæmd þeirri meginreglu sem birtist í sjálfstæðisyfirlýsingu Bandaríkjanna frá 1776 og margir Bandaríkjaforsetar hafa síðar áréttað: Ríkisstjórnir sækja réttmætt vald sitt til samþykkis þeirra sem stjórnað er.
Hvorki nýlenduveldin né stjórnin í Kænugarði höfðu samþykki þjóðanna sem þau reyndu að stjórna.
Þessi regla var einnig einróma áréttuð í yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna frá 1970. Þar segir skýrt að allir skuli virða landhelgi þeirra ríkja þar sem ríkisstjórnirnar séu fulltrúar allra íbúanna á viðkomandi landsvæði.
Afnám nýlendustefnu – BRICS
Í dag eru Afríka og öll ríki hins hnattræna suðurs að vakna á ný og sækjast eftir fullu sjálfstæði. Sameinuðu þjóðirnar mega ekki láta sér það í léttu rúmi liggja.
Í desember síðastliðnum samþykkti allsherjarþingið ályktun undir yfirskriftinni „Afnám nýlendustefnu í öllum myndum hennar“. Við hvetjum til þess að næsta skref verði að lýsa 14. desember alþjóðadag afnáms nýlendustefnu.
Við fögnum hlutverki Vinahópsins til varnar sáttmála Sameinuðu þjóðanna við að sameina krafta gegn nýlendustefnu í nýjum búningi og öðrum mismunandi aðferðum sem beinast gegn meirihluta heimsins. Við bjóðum öllum sjálfstæðum ríkjum að taka þátt í þessu frumkvæði og ganga til liðs við hópinn.
Núverandi valdahlutföll í heiminum eru gjörólík þeim sem urðu til fyrir áttatíu árum. Afnám nýlendukerfisins og aðrar stórfelldar breytingar hafa umbreytt stjórnmálakorti jarðar. Meirihluti heimsins gerir nú kröfu um rétt sinn með skýrum hætti.
Samstarfsstofnun Sjanghæ og BRICS gegna sérstöku hlutverki sem vettvangar til að samræma hagsmuni ríkja hins hnattræna suðurs og austurs. Áhrif Afríkusambandsins, Bandalags ríkja Rómönsku Ameríku og Karíbahafsins, CELAC, og annarra svæðisbundinna samtaka fara vaxandi.
Þessi nýi veruleiki hefur enn ekki endurspeglast með fullnægjandi hætti í stofnanaskipan samtaka okkar. Umbætur á öryggisráðinu eru sérstaklega mikilvægar.
Rússland kallar eftir því að ráðið verði lýðræðislegra, og það verði gert með aukinni hlutdeild Asíu, Afríku og Rómönsku Ameríku. Við styðjum umsóknir Brasilíu og Indlands um fast sæti í ráðinu og jafnframt að leiðrétt verði sögulegt ranglæti gagnvart Afríku samkvæmt þeim viðmiðum sem ríki álfunnar hafa sjálf komið sér saman um.
Nýlega lagði António Guterres aðalframkvæmdastjóri fram tillögu um víðtækar umbætur á Sameinuðu þjóðunum. Við erum ekki andvíg opinni umræðu um þetta frumkvæði.
Leiðarljósið ætti að vera að Sameinuðu þjóðirnar snúi aftur að þeim grundvallarreglum sem sáttmáli þeirra kveður á um og Vesturlönd hafa árum saman reynt að leysa af hólmi með svokallaðri reglubundinni heimsskipan sinni.
Mikilvægt er að vinnan fari fram með gagnsæjum hætti, með þátttöku allra aðildarríkja og tilliti til hagsmuna þeirra. Við hvetjum aðalframkvæmdastjórann og alla starfsmenn skrifstofunnar til að fylgja afdráttarlaust meginreglum um óhlutdrægni og jafna afstöðu gagnvart öllum, í samræmi við hundraðustu grein sáttmálans.
Ekki má leyfa tilraunir til hallarbyltingar innan skrifstofunnar eða að fámennur hópur ríkja sölsi hana undir sig. Samsetning starfsliðs hennar ætti að endurspegla nýjan veruleika og tryggja sanngjarna hlutdeild ríkja meirihluta heimsins.
Við væntum uppbyggilegrar umræðu um þróun samtakanna á sérstökum fundi öryggisráðsins sem Rússland hyggst boða til í formennskutíð sinni á degi Sameinuðu þjóðanna, 24. október.
Umbætur á Sameinuðu þjóðunum eru aðeins einn þáttur þess flókna verkefnis að umbreyta öllu alþjóðlega stjórnkerfinu. Þar undir fellur raunveruleg lýðræðisvæðing Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Alþjóðabankans og Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, í samræmi við vægi og hlutverk ríkja hins hnattræna suðurs og austurs í efnahag heimsins, viðskiptum og fjármálum.
Umræður um alþjóðlegar umbætur geta ekki horft fram hjá því að alþjóðlegt öryggisástand fer versnandi.
Útþensla NATO
Ég hef þegar rætt ástæður þess og ítreka að sú helsta er viljinn til að halda í yfirráð með hervaldi. Sífellt fleiri lönd og svæði dragast inn í áætlanir sem byggjast á árekstrum.
NATO telur þröngt um sig í Evrópu og teygir sig inn á Kyrrahaf, Suður-Kínahaf og Taívansund. Með því grefur bandalagið undan þeim samstarfsvettvangi ASEAN sem nær til allra ríkja samtakanna og skapar ógnir, ekki aðeins fyrir Kína og Rússland heldur einnig önnur ríki á svæðinu.
Forysta NATO réttlætir þetta nýja stig útþenslunnar með slagorðinu um að öryggi Evró-Atlantshafssvæðisins og Indlands- og Kyrrahafssvæðisins sé ódeilanlegt. Með þessu slagorði er reynt að slá hernaðarhring um alla Evrasíu.
Rússland og samstarfsríki sem deila sjónarmiðum þess bjóða uppbyggilegan valkost við þessa hættulegu stefnu: Að byggja upp öryggiskerfi í Evrasíu sem tryggi jafnt og ódeilanlegt öryggi, ekki aðeins fyrir aðildarríki NATO og bandamenn þeirra heldur öll ríki og samtök álfunnar án undantekningar.
Þar á meðal eru Samstarfsstofnun Sjanghæ, Samveldi sjálfstæðra ríkja, ASEAN, Efnahagsbandalag Evrasíu, Sameiginlega öryggissáttmálastofnunin, Samstarfsráð Persaflóaríkja og aðrir.
Í því skyni leggja Hvíta-Rússland og Rússland, sem samstarfsríki innan Sambandsríkisins, til að saminn verði sáttmáli Evrasíu um fjölbreytni og fjölpóla skipan á 21. öldinni.
Ferli sem nær raunverulega til allrar álfunnar er óhjákvæmilegt eftir að framferði Vesturlanda hefur gert öryggiskerfi Evró-Atlantshafssvæðisins, sem byggðist á NATO, ESB og ÖSE, merkingarlaust. Við sjáum enga möguleika á að endurreisa þetta kerfi í Evrópu í fyrri mynd, eins og sumar evrópskar ríkisstjórnir eru skyndilega farnar að velta fyrir sér.
Ýmsir stjórnmálamenn í Brussel ræða þegar um þriðju heimsstyrjöldina
Þegar við ræðum framtíðina megum við ekki gleyma lærdómi fortíðarinnar, sérstaklega við þær aðstæður að nasismi er aftur farinn að láta á sér kræla í Evrópu og hervæðing sækir í sig veðrið undir sömu andrússnesku slagorðunum.
Þetta er enn meira áhyggjuefni í ljósi þess að ýmsir stjórnmálamenn við völd í Brussel og sumum höfuðborgum ESB- og NATO-ríkja eru farnir að ræða þriðju heimsstyrjöldina af fullri alvöru sem líklega atburðarás.
Þessir aðilar grafa undan öllum tilraunum til að finna sanngjarnt jafnvægi milli hagsmuna allra ríkja alþjóðasamfélagsins. Þeir reyna að þröngva einhliða nálgun sinni upp á alla aðra og brjóta þar með gróflega gegn þeirri lykilkröfu sáttmálans sem ég hef þegar nefnt ítrekað: Virðingu fyrir jafnræði fullvalda ríkja.
Það er einmitt þetta jafnræði sem er undirstaða þeirrar fjölpóla heimsskipanar sem er að verða til.
Rússland hvetur ekki til byltingar gegn neinum. Land okkar hefur þjáðst meira en flest önnur vegna byltinga. Við köllum einfaldlega eftir því að aðildarríkin og forysta skrifstofunnar fylgi öllum meginreglum sáttmála Sameinuðu þjóðanna afdráttarlaust, án undantekninga og án tvískinnungs.
Aðeins þannig verður komið í veg fyrir að arfleifð stofnenda Sameinuðu þjóðanna fari til spillis.
Þakka ykkur fyrir áheyrnina.
