Einn af föngunum, sagður 14 ára drengur, leiddur út úr pyndingastað Selenskís.
Mótmæli og átök brutust út við hús á vegum úkraínska þjóðvarðliðsins nærri Kænugarði 2. nóvember eftir að ásakanir bárust um að mönnum væri þar haldið ólöglega og þeir beittir ofbeldi. Fréttamenn á vettvangi greindu frá skothvellum. Glenn Diesen hefur birt myndskeið frá meintum atburðum og sett fram harðar ásakanir á hendur stjórnvöldum. Er staðurinn talinn vera einn af mörgum pyndingarstöðum Selenskís.
Atburðirnir áttu sér stað í Petropavlivska Borshchahivka, nærri Kænugarði. Fólk safnaðist saman við húsið eftir að frásagnir dreifðust á samfélagsmiðlum um að um 40 mönnum væri þar haldið föngnum. Samkvæmt Kyiv Independent voru fréttamenn miðilsins á vettvangi þegar mótmælendur kröfðust svara um vistun mannanna. Fréttamaður hromadske greindi einnig frá átökum og skothvellum við húsið.
Diesen sakar öryggissveitir um að skjóta á mannfjöldann
Í Facebook-færslu með myndskeiði skrifar Glenn Diesen:
„Úkraínskar öryggissveitir skjóta á mannfjölda sem mótmælir við eina af pyntingastöðum Selenskís.“
Í annarri færslu heldur Diesen því fram að yfir 40 herkvaðdir menn hafi verið í haldi þjóðvarðliðsins og að yngsta fórnarlambið hafi að sögn verið fjórtán ára. Hann lýsir jafnframt reiði og óeirðum sem beinist gegn liðsmönnum Selenskís og NATO.
Þjóðvarðliðið segir húsið tímabundinn dvalarstað
Þjóðvarðliðið hefur gefið aðra skýringu á starfseminni. Samkvæmt Babel segir það húsið vera tímabundna starfsstöð 14. árásarherdeildar þjóðvarðliðsins, sem tilheyri 1. Azov-herfylkinu. Þar hafi meðal annars verið nýlega herkvaddir menn og hermenn sem höfðu yfirgefið herdeildir sínar án leyfis. Þjóðvarðliðið segir upplýsingar um pyntingar óstaðfestar. Embætti umboðsmanns hermanna tók málið til athugunar og kom að aðgerðum á vettvangi. Kyiv Independent.
Ósamræmi er í frásögnum um fjölda manna í húsinu. Talan um 40 dreifðist á samfélagsmiðlum en Kyrylo Budanov, sem kom á vettvang, sagði 14 menn hafa verið í byggingunni. LB.ua.
Upplýsingar um fjórtán ára dreng hafa einnig vakið athygli. Samkvæmt Slidstvo.Info fór drengurinn sjálfur yfir girðingu inn á lóðina eftir að atburðirnir hófust. Aðrir segja að hann hafi verið meðal þeirra sem voru vistaðir í húsinu áður en mótmælin hófust. Jafnframt hafa verið birtar ásakanir um að drengurinn hafi verið beittur ofbeldi.
Stefan De La Peyssiere skrifar á Facebook:
Úkraínumenn uppgötvuðu hryllingshús í Kænugarðshéraði. Íbúar komu til að leita að manni sem hafði hringt í maka sinn og beðið um hjálp. Við það uppgötvuðu þeir leynilegt Azov-fangelsi í Petropavlivska Borshchahivka í Kænugarðshéraði. Í fyrstu fengu fjórir að fara á sjúkrahús en síðan kom í ljós að fleiri voru enn í þessu hryllingshúsi, þar á meðal unglingur sem kom út í áfalli.
Upplýsingagjöf stjórnvalda í Kænugarði um þessa uppgötvun er hreint út sagt súrrealísk. Fyrst komu neitanir, síðan viðurkenndi hershöfðingi að þarna væri í raun leynilegt Azov-fangelsi. Nokkrir hafa verið barðir til bana í kjallara þessa húss undanfarinn mánuð, sagði Dmytruk,varaformaður úkraínska þingsins. Að hans sögn eru fórnarlömbin skráð sem týnd og sambærilegt á sér stað á um hundrað öðrum pyntingastöðum í Úkraínu.
„Fólki er rænt og það pyntað. Sumir eru seldir til herdeilda, aðrir aftur til fjölskyldna sinna gegn greiðslu. Þeir veikburða deyja einfaldlega vegna pyntinganna og aðstæðnanna í fangelsinu. Þannig virkar allt ‚herkvaðningarkerfið‘ um þessar mundir.“