Daily Mail birtir frétt í dag um að Vladimir Pútín hafi lýst því yfir að hægt hefði verið að afstýra stríðinu í Úkraínu hefði Donald Trump ekki verið „rændur kosningunum“ árið 2020. Pútín sagði við ríkisfjölmiðla að sú hryllilega blóðsúthelling sem hefur eyðilagt Austur-Evrópu eftir nær þriggja ára stríðsátök, hefði aldrei getað gerst á forsetatíð Donald Trump.
Rússlandsforseti sagði:
„Ég get ekki annað en verið sammála honum um það, að ef hann hefði verið forseti, ef sigri hans hefði ekki verið stolið af honum árið 2020, þá hefði Úkraínukreppan árið 2022 ekki farið af stað.“
Ummæli hans komu í viðamiklu viðtali þar sem Vladimir Pútín hrósaði nýlega settum Bandaríkjaforseta og sagði Trump bæði „snjallan og raunsæjan“ á sama tíma og hann sagðist vera fús til að setjast við samningaborðið um Úkraínu. Pútín sagði um Trump:
„Hann er ekki aðeins afburða gáfaður maður heldur og líka raunsær maður.“
„Ég á erfitt með að ímynda mér að það verði teknar ákvarðanir sem eru skaðlegar fyrir bandarískt efnahagslíf.“
„Hvað varðar samningaviðræður… við höfum alltaf sagt, og ég vil undirstrika þetta enn og aftur, að við erum tilbúin í þessar samningaviðræður um málefni Úkraínu.“