Prófessor Jeffry Sachs segir Evrópusambandið hafa dregist aftur úr tæknilega séð sem kemur á óvart, vegna þess að Evrópa hafi alla tæknina, stofnanirnar, háskólana, alla vísindamennina sem til þarf. Þegar litið sé á gervigreind og nettækni, þá hafa Bandaríkjamenn allan markaðinn. Hann segir Evrópu vera með reglugerðir en enga risa á sviði gervigreindar eða rafbílar, Kennir vanmætti Evrópu um að ESB sé ekki þegar orðið að einu stórríki og vill að mynduð verði ein ríkisstjórn ESB fyrir alla Evrópu. Hann trúir einnig á loftslagstrúboðið og notar hamfarahlýnun sem skýringu á nauðsyn einnar alheimsstjórnar í höndum Sameinuðu þjóðanna.
Prófessor Jeffry Sacs var á Kýpur og hélt þá útifund með ESB-þingmanninum Fidias Panayiotou þar sem eftirfarandi kom fram en hann ráðlagði lítilli þjóð eins og Kýpur að vinna að meiri samruna ESB til að geta keppt við Bandaríkin og önnur stórveldi í tæknigeiranum. Hér að neðan má sjá stuttan úrdrátt úr viðtalinu og viðtalið allt þar fyrir neðan. ESB-þingmaðurinn Panayiotou heldur úti hlaðvarpi á YouTube og hefur rætt við þekkt fólk eins og Nigel Farage.
Sachs segir að ESB vanti samræmda stjórnun og spurði hver segði risafyrirtækinu ASML hvað ætti að gera, því ekki gerði Holland það né Brussel heldur Bandaríkjamenn. Hann segir að fulltrúar risafyrirtækja í Evrópu hlæi að honum, þegar hann spyr um samræmda framtíðaráætlun fyrir Evrópu.
„Jeff veistu ekki neitt? Að sjálfsögðu er ekki til nein framtíðaráætlun fyrir Evrópu. Ástæðan fyrir því að hlutirnir virka ekki er vegna þess, að þegar allt er undir sameiginlegri ákvörðun 27 ríkja, þá virka hlutirnir ekki. Fjármálaáætlun ESB er 1% af andvirði framleiðslunnar í Evrópu en fjármál þjóða um 40%, þá er þessi litla skán ofan á þjóðirnar dæmd til að mistakast.“
Jeff segist ekki vilja vera eitt af 27 ríkjum ESB:
„Þið eruð 27 ríki, þið eruð í vandræðum. Ef þið væruð eitt ríki, þá hefðu þið möguleika.“