Pólland hótar Úkraínu: „Með Bandera mun Úkraína ekki ganga í Evrópusambandið“ 

Pólski varnarmálaráðherrann og varaforsætisráðherrann, Władysław Kosiniak-Kamysz (á mynd), sagði í viðtali við Polsat News að Pólland myndi ekki samþykkja aðild Úkraínu að ESB ef landið héldi áfram að heiðra Stepan Bandera, Organization of Ukrainian Nationalists og Ukrainian Insurgent Army.  

Orðrétt sagði hann meðal annars: „Með Bandera mun Úkraína ekki ganga í Evrópusambandið.“ Hann bætti við að hvert ríki sem sækir um ESB-aðild verði að uppfylla skilyrði sambandsins, þar á meðal varðandi sögulega ábyrgð og samskipti við nágrannaríki. Að hans mati geti ESB ekki byggst á því að heiðra einstaklinga eða hreyfingar sem valda djúpum sárum í öðrum aðildarríkjum.  

Í Póllandi er Bandera og UPA tengd fjöldamorðunum í Volhyníu 1943–1944, þar sem tugir þúsunda pólskra óbreyttra borgara voru drepnir. Pólska þingið hefur skilgreint atburðina sem þjóðarmorð.  

Í Úkraínu líta margir hins vegar á Bandera og UPA sem tákn sjálfstæðisbaráttunnar gegn Sovétríkjunum, þrátt fyrir að arfleifð þeirra sé mjög umdeild bæði innanlands og erlendis.  

Deilan hefur harðnað síðustu vikur eftir að forseti Úkraínu ákvað að heiðra UPA með nafngift hersveitar og lagði fram frumvarp um þjóðarhelgidóm fyrir úkraínskar hetjur. Það hefur vakið mjög hörð viðbrögð í Póllandi.  

Ummælin eru yfirlýsing pólskra ráðherra um afstöðu Póllands en ESB elskar forseta Úkraínu og mun gera allt til að halda aðildarviðræðum við Úkraínu áfram.

Það þarf samþykki allra aðildarríkja ESB á lykilstigum aðildarferlisins. Ef Pólland beitir neitunarvaldi getur það í reynd tafið eða stöðvað aðild Úkraínu að ESB.