Peter McCullough: mRNA-bóluefnin eru orðin að trúarbrögðum

Bandaríski hjartalæknirinn Peter McCullough segir að fyrirtæki og stjórnvöld um allan heim séu í sameiginlegu „ástarsambandi“ varðandi mRNA bóluefni sem notuð eru í bólusetningum gegn Covid. Milljarðar ofan á milljarða hafa verið fjárfestir í tækninni sem skila sér í hömlulausum gróða til lyfjarisanna.

Bandaríski hjartalæknirinn Peter McCullough var spurður að því í viðtali við „The Absolute Truth“ hvers vegna stjórnvöld séu svona áhugasöm um mRNA bóluefnatæknina. Hann svarar:

„Þetta er í rauninni orðið að trúarbrögðum. Bóluefnafræðin er orðin að hugmyndafræði. Þeir (yfirvöld) hafa tileinkað sér trú. Þeim er sama um öryggið.“

„Stjórnvöld vinna hönd í hönd með þessum atvinnugreinum og félagasamtökum. Þetta virðist vera orðið að trilljón dollara viðskiptum út um allan heim.“

Að sögn McCullough eru „sprautuðu vörurnar“ orðnar eins og „galdrarúnir til að vernda mannkynið“ skrifar hann í færslu á X.

Fara efst á síðu