Páll Vilhjálmsson bloggari segir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra hafa tekið fram fyrir hendur Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra með bréfi til formennsku ráðherraráðs Evrópusambandsins þar sem lýst er yfir að staða aðildarferlis Íslands sé óbreytt. Hann bendir á að Kristrún hafi áður sagt Alþingi eiga að ræða afdrif ESB-umsóknarinnar frá 2009 í haust.
Í bloggfærslu sinni, „Þorgerður tekur völdin af Kristrúnu“, beinir Páll sjónum að því sem hann telur vera grundvallarágreining innan ríkisstjórnarinnar um afdrif umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Daginn eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst, þar sem meirihluti hafnaði því að Ísland hæfi aðildarviðræður að nýju, sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra að ræða þyrfti á Alþingi hvort draga ætti umsóknina frá 2009 til baka.
Vísir hafði eftir Kristrúnu að umsóknin hefði aldrei verið afturkölluð þrátt fyrir ríkisstjórnarskipti og að hún teldi nauðsynlegt að ræða á þingi hvort það ætti nú að gera.
„Ríkisstjórnin virðir niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar og mun því ekki beita sér fyrir að aðildarviðræðurnar verði teknar upp að nýju en staða aðildarferlis Íslands er áfram óbreytt.“
Páll telur þetta stangast á við fyrri yfirlýsingu forsætisráðherra um að Alþingi ætti að ræða afdrif umsóknarinnar. Hann segir jafnframt að ekki sé vitað til þess að ríkisstjórnin hafi formlega samþykkt þá afstöðu sem birtist í bréfinu.
„Þorgerður Katrín ákvað einfaldlega að láta forsætisráðherra standa frammi fyrir orðnum hlut,“ skrifar Páll.
Hann gengur enn lengra og segir utanríkisráðherra hafa tekið sér hlutverk sem henni beri ekki:
„Forsætisráðherra, en ekki utanríkisráðherra, talar fyrir ríkisstjórnina í heild. Þorgerður Katrín tekur sér formlegt vald sem hún hefur ekki er hún kemur fram eins og oddviti ríkisstjórnarinnar.“
Bendir á undirskriftirnar frá 2009
Páll ber bréfið nú saman við sjálfa aðildarumsóknina frá árinu 2009. Þá undirrituðu bæði Jóhanna Sigurðardóttir, þáverandi forsætisráðherra, og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra umsókn Íslands. Páll bendir á að undirskrift Jóhönnu hafi verið aðalundirskrift en Össurar stuðningsundirskrift.
Kristrún hafi hins vegar ekki skrifað undir bréf Þorgerðar Katrínar þar sem staða þessa sama aðildarferlis er sögð óbreytt.
Páll spyr því hvort forsætisráðherra hafi yfirhöfuð veitt utanríkisráðherra heimild til þess að senda yfirlýsinguna í nafni ríkisstjórnarinnar.
„Rökrétt er að afturkalla umsóknina“
Páll telur niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar jafnframt kalla á að umsóknin frá 2009 verði afturkölluð.
Hann leggur þar áherslu á orðalag spurningarinnar:
„Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“
Orðin „á ný“ vísi að hans mati beinlínis til aðildarferlisins sem hófst með umsókninni 2009. Þar sem þjóðin hafi hafnað endurupptöku þess sé rökrétt að draga umsóknina til baka.
Vilji framtíðarþingmeirihluti sækja um aðild að ESB sé ávallt hægt að leggja nýja umsókn fram, að mati Páls.
Samráð við utanríkismálanefnd ekki farið fram
Páll rifjar einnig upp að stjórnarandstöðuþingmenn í utanríkismálanefnd hafi gagnrýnt Þorgerði Katrínu fyrir að senda bréfið án þess að ráðfæra sig fyrst við nefndina.
Á fundi nefndarinnar 31. ágúst hafi utanríkisráðherra sagt að haft yrði samráð við þingið áður en frekari skref yrðu tekin varðandi umsóknina frá 2009.
Átta dögum síðar var bréfið sent.
Þetta er sami þáttur málsins og Björn Bjarnason vakti athygli á í grein sinni í gær, þar sem hann spurði hver hefði veitt utanríkisráðherra umboð til að ákveða að staða aðildarferlisins héldist óbreytt.
Hvor ræður ferðinni?
Páll telur pólitíska hagsmuni stjórnarflokkanna einnig ólíka.
Viðreisn eigi mikið undir því að halda ESB-málinu lifandi fyrir næstu þingkosningar. Staða Samfylkingarinnar sé önnur. Páll rifjar upp að Kristrún hafi fyrir síðustu þingkosningar sett mun hærri þröskuld fyrir stuðningi sínum við nýja ESB-vegferð.
Stjórnarandstaðan hefur nú boðað þingmál um að Alþingi álykti að umsókn Íslands frá 2009 verði afturkölluð.
Verði það lagt fram telur Páll að ríkisstjórnin komist ekki hjá því að taka skýra afstöðu.
Hann lýkur færslunni með því að segja að þá muni koma í ljós „hvor ræður ferðinni á stjórnarheimilinu, Kristrún forsætis eða Þorgerður Katrín utanríkis.“
Rétt er einnig að benda á kæru Loka Kjartanssonar um ólögmæti þjóðaratkvæðagreiðslunnar, en hann bendir þar á sama atriði og Páll ræðir um, nefnilega að það er á borði forsætisráðherra að tala fyrir ríkisstjórninni í máli sem varðar breytingu á stjórnarskrá meðal annars. Deilan um ESB-umsóknina hefur því þróast frá því eingöngu vera túlkun á niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar yfir í aðra og ekki síður mikilvæga spurningu: Hver hefur umboð til að ákveða næstu skref Íslands gagnvart Evrópusambandinu?