Ótrúlegt hversu hratt hún hrörnaði

This picture taken on February 2, 2019 shows newly-discovered mummies wrapped in linen found in burial chambers dating to the Ptolemaic era (323-30 BC) at the necropolis of Tuna el-Gebel in Egypt's southern Minya province, about 340 kilometres south of the capital Cairo. - Egypt's Antiquities Minister said on February 2 that a joint mission from the ministry and Minya University's Archaeological Studies Research Centre found upon a collection of Ptolemaic burial chambers engraved in rock and filled with a large number of mummies of different sizes and genders. The minister added that the newly discovered tombs may be a familial grave for a family from the elite middle class. (Photo by MOHAMED EL-SHAHED / AFP) (Photo credit should read MOHAMED EL-SHAHED/AFP/Getty Images)

Þessar múmíur fundust 2019 í Egyptalandi og eru taldar vera frá 330 fyrir Krist. Þær eru því talsvert eldri en ríkisstjórn Íslands.

Höfundur Reykjavíkurbréfs Morgunblaðsins hittir naglann beint á höfuðið á nýju ríkisstjórninni. Hann skrifar:

Rúmar 240 milljónir, en einn „aðalráðherrann“ hafði gleypt þessar summur hráar í þrjú ár. Og augljóst er að „nýja ríkisstjórnin“ ætlar ekki að hlutast til um það sem tekið var ófrjálsri hendi. „Nýja“ ríkisstjórnin er þar með orðin „gamla, slitna stjórnin“ og er ótrúlegt hversu hratt hún hrörnaði.“

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir lýsir stjórninni á eftirfarandi hátt:

„Tveggja flokka vinstri­stjórn. Með þess­um tveim­ur flokk­um eru líka ein­hvers kon­ar fé­laga­sam­tök, sem reynd­ar stefna að því að skrá sig sem stjórn­mála­flokk fyrr eða síðar. Þing er ekki hafið og það er strax farið að bera á brest­um í rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu. Það hlýt­ur að vera Íslands­met.“

Samfylking, Viðreisn og Félag fólksins eins og Borgþór Ólason kallar skúffufyrirtæki Ingu Sælands og spyr hvort að 240 milljónirnar séu lausnargjald ríkisstjórnarinnar. Og þing er ekki einu sinni komið saman eftir kosningarnar. Og týndir atkvæðakassar hafa fundist eftir kjördag samanber Akureyri og mögulega víðar. Og Dagur B. sem ótrúlegt er að sé ekki kominn í dómsferli vegna fjármálasvindls er uppfærður á þing í staðinn, hann á að rannsaka starfsmenn Dags B. borgarstjóra sem telja atkvæði í Reykjavík og rugla um póst og sendingar og geta ekki einu sinni útskýrt þúsundir atkvæða sem „birtust allt í einu.

Með véfengda útkomu kosninganna og þinglaust land, þá skundar utanríkisráðherra sér beint til Brussel til að tryggja að mygluð aðildarumsókn Íslands sé nú örugglega virk fyrir ESB-kosningar á Íslandi sem valkyrjurnar ætla að þvinga upp á þjóðina ár 2027. Forgangsröðun þessara tveggja flokka og skúffufyrirtækisns er augljós: ESB er það eina sem gildir, Ísland – sjálf þjóðin sett í skammarkrókinn út í horn.

Stóra spurningin er hvað Sjálfstæðismenn gera. Komandi Landsfundur þeirra verður afgerandi fyrir, hvort flokkurinn nái aftur vopnum fyrir sjálfstæði Íslands eða hvort flokkurinn verður endanlega jarðaður sem fylgifugl pólitísks rétttrúnaðar, loftslagstrúboðs, heimsendaspádóma alþjóða stofnana og kynsegin faraldurs fleiri hundruð kynja. Eina leið flokksins er að þar finnist einhver Trump sem geti líkt og Gordon höggið á dellu- og spillingarhnútinn sem flokkurinn er kominn í svo flokkurinn geti einbeitt sér að sínu upprunalega markmiði sem aðalstofnandi lýðveldisins Íslands. Ekkert annað dugir vilja Sjálfstæðismenn vernda grundvöll lýðveldisins í staðinn fyrir að sogast með Evrópusambandinu í svarthol efnahagslegs sjálfsmorðs og þegar er í grænum andarslitrum.

Spurningin er: Hrökkva menn eða stökkva.

Fara efst á síðu