Óska eftir að forseti Íslands kanni grundvöll þingrofs

Logi Kjartansson lögfræðingur hefur fyrir hönd nokkurra íslenskra ríkisborgara sent Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, erindi þar sem óskað er eftir að hún kanni hvort grundvöllur sé fyrir þingrofi. Erindið varðar meinta annmarka á aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB hinn 29. ágúst og viðbrögðum ráðherra í kjölfarið. Fréttin greinir frá þessu.

Í þrettán blaðsíðna erindi, sem byggir á kæru um ólögmæti þjóðaratkvæðagreiðslunnar til úrskurðarnefndar kjörstjórnar, eru meðal annars gerðar athugasemdir við valdheimildir utanríkisráðherra, upplýsingagjöf stjórnvalda og aðgang almennings að gögnum. Þá er greint frá því, að kynningarefni ráðuneytisins hafi verið til þess fallið að hafa áhrif á afstöðu kjósenda.

Í viðbragsbeiðninni er jafnframt lýst yfir áhyggjum af því að stjórnvöld hyggist ekki virða niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar. Þeir óska eftir að forseti kanni beitingu þingrofsheimildar samkvæmt 24. grein stjórnarskrárinnar eða bregðist við með öðrum hætti.

Ekki er vitað, hvort forsetaembættið hafi svarað erindinu enn sem komið er. Í lokaorðum bréfsins segir:

„Að öllu framangreindu gættu og þá ekki síst stjórnskipunar- og stjórnarfarsréttarlegu hlutverki, valdheimildum og skyldum Forseta Íslands virtum og túlkuðum í samhengi, er þess farið á leit aðallega við virðulegan forseta að kanni hvort grundvöllur teljist fyrir því að virkja þá þingrofsheimild sem honum er fengin samkvæmt 24. gr. stjórnarskrárinnar eða þá beiti sér réttilega að öðru leyti vegna þeirra lýðræðislegu og lagalegu annmarka sem lýst hefur verið hér að framan og lúta að bæði aðdraganda kosningarinnar 29. ágúst sl. sem og viðbrögðum ráðherra í kjölfarið. “