Í dag ræðst hvort ESB tekst að veiða landsmenn í gildruna og Ísland verði fast í neti Evrópusambandsins um ókomna tíð eða hvort landsmenn kjósa að halda sjálfsákvörðunarrétti sínum yfir eigin örlögum eins og ákveðið var með stofnun lýðveldisins 1944. Það er alfarið óráðsía að stöllurnar í stjórnarráðinu skuli hafa látið glepjast af áróðri erlendra flokksbræðra, fallið fyrir pólitískum loftköstulum ókjörinna embættismanna í Brussel og látið eigin hégóma taka yfirhöndina í stjórn landsins. Enda hefur útkoman verið í stíl brotinna kosningaloforða um lægri verðbólgu og betri kjör landsmanna sem valkyrjurnar lofuðu í aðdraganda síðustu alþingiskosninga.
Hin fræga Kristrúnarsleggja hefur sýnt sig vera sleggja hærri skatta á fyrirtæki og almenning í landinu og sleggja sósíalískrar einræðishyggju til að mola stjórnarskrá lýðveldisins. Öll þessi ESB-vegferð er valdníðsla og svik við þjóðina sem lofað var að ekki yrði lagt upp í þessa vegferð á kjörtímabilinu. Vonandi verður útkoma dagsins svo stórt nei að taki undir í fjöllunum eins og einn góður nei-sinni sagði. Hér að neðan er alla vega nokkrar raddir ungu kynslóðarinnar sem gefa von um að sjálfstæð þjóð búi áfram í landinu. Þjóðólfur hvetur alla landsmenn sem vettlingi geta valdið að mæta á kjörstað og krossa við NEI.
