Það er kominn tími til að Evrópa hætti við „frjálslynda áætlun“ alþjóðasinnanna og tileinki sér í staðinn þjóðrækna áætlun, segir Viktor Orbán, leiðtogi Ungverjalands.
Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, telur að kominn sé tími til að hætta við „frjálslynda“ áætlun glóbalizmans fyrir Evrópu.
Samkvæmt Orbán kemur hin „raunverulega ógn“ Evrópu „að innan.“ Hann skrifar á X og bendir á að Evrópa þurfi ekki á frjálslyndum fantasíum að halda lengur heldur „rótum, styrk og stolti.“
„Glóbaliztarnir í Brussel kalla eftir því að við yfirgefum hefðir okkar og trú fyrir framtíð sem leiðir til kreppu og ringulreiðar. Tími er kominn til að hætta við frjálslyndu áætlunina. Þeir hafa reynt í áratugi að búa til nýja sjálfsmynd sem koma á í stað kristni og þjóðarinnar.“
Eftir sigur Trumps í Bandaríkjunum eru glóbaliztarnir að reyna að gera Evrópu að „síðasta vígi hins alþjóðlega frjálslynda heimsveldis.“
Frjálslyndir flýja Ameríku til Brussel. Eftir Washington er Brussel orðin nýja Mekka þeirra.