Enn eitt fórnarlamb vókismans hefur litið dagsins ljós. Vókisminn hefur fengið blóðþef og fellir sífellt stærri fórnarlömb. Í þetta sinn Hjört Guðmundsson fv. blaðamann Morgunblaðsins sem hefur verið ein af öflugustu röddum Nei-hreyfingarinnar gegn aðildarviðræðum Íslands við ESB. Hjörtur fær að sjálfsögðu vegna pólitískrar þyngdar sinnar mikla athygli auk þeirrar svívirðilegu framkomu gagnvart honum að láta taka pokann samstundis. Hann vann á Hagstofu Íslands sem fellur undir forsætisráðuneytið. Miklar umræður eru um málið og skrifar Heimssýn á blog.is eftirfarandi:
„Fánaberi felldur, öðrum til viðvörunar
Lýðræðislegt samfélag byggist á opinni umræðu, sem heppilegast er að sé yfirveguð, skýr, innihaldsrík og háttvís. Hjörtur J. Guðmundsson hefur verið fánaberi slíkrar umræðu á Íslandi. Hann hefur rætt stjórnmál, einkum svokölluð Evrópumál.
Nú hefur íslenskt ríkisvald komist að því að ástæða sé til að senda þau skilaboð til opinberra starfsmanna að þeirra sé að halda kjafti allan daginn. Með uppsögn Hjartar stíga yfirvöld á Íslandi risaskref aftur í tímann. Hætta er á að sú pólitíska refsiaðgerð að segja Hirti upp verði fordæmi fyrir önnur ráðuneyti og stofnanir, og fyrir ríkisstjórnir framtíðar.
Hagstofan heyrir undir forsætisráðuneytið. Greiðasta leiðin úr feninu er að forsætisráðherra hringi í Hjört og semji við hann á þann veg að skilaboðin sem hér eru rædd reynist vera misskilningur.“
Páll Vilhjálmsson skrifar á blog.is:
„Pólitísk uppsögn á Hagstofu
Áður en Hjörtur fékk uppsögnina hafði hann hvorki fengið aðvörun né áminningu. Enginn hafði kvartað undan vinnuframlagi hans eða samskiptum við starfsfélaga. Þeir sem þekkja til Hjartar vita að þar fer hófstilltur og dagfarsprúður maður, orðvar og kurteis.
Tvær skýringar eru líklegastar á þeirri ákvörðun að leggja niður starf Hjartar. Í fyrsta lagi að Hrafnhildur hagstofustjóri hafi viljað kaupa sér velvild í forsætisráðuneytinu með því að gera Hjört atvinnulausan. Hjörtur er gagnrýninn á ESB-aðild Íslands og hefur sýnt fram á að stjórnvöld innleiða ranglega bókun 35 í EES-samningnum með lagafrumvarpi á alþingi. Í öðru lagi að Hrafnhildur hagstofustjóri hafi fengið skilaboð frá forsætisráðuneytinu um að erfitt yrði fyrir stofnunina að fá sitt á fjárlögum með Hjört í starfi. Hvort heldur sem er fær Hjörtur reisupassann á Hagstofunni fyrir þátttöku í opinberri umræðu um sitt sérsvið, sem eru Evrópumál. Engin málefnaleg rök liggja að baki uppsögninni.
Hausar skulu fjúka er ekki sniðug pólitík vinstrimanna sem tímabundið er treyst fyrir landsstjórninni.“
Lítur á uppsögnina sem tækifæri
Sjálfur skrifar Hjörtur Guðmundsson eftirfarandi á Facebook:
„Fyrir þá sem ekki þekkja til var mér fyrirvaralaust sagt upp störfum fyrir réttri viku síðan, var gert að hætta strax og hafði fyrir vikið ekki svigrúm til þess að kveðja aðra en eina góða samstarfskonu sem sat rétt hjá mér. Skýringin sem ég fékk var aðhaldskrafa frá stjórnvöldum og tekið ítrekað fram að engar athugasemdir væru við mín störf.“
„Þetta var auðvitað skellur og engin ástæða til þess að gera lítið úr því en ég kýs að líta á þetta sem tækifæri. Það eru tækifæri í öllum aðstæðum.“
Þannig talar hinn æðrulausi maður sem er trúr sannfæringu sinni og er eins og athafnamaðurinn sem sér nýjar dyr opnast í stað þeirra sem lokast. Þessa afstöðu ætti þjóðin að hafa að leiðarljósi í sjá núna tækifærið í að vega að spillingu vinstrimanna sem nota völd sín innan kerfisins til pólitískra ofsókna gegn stjórnarandstæðingum.
Nei-hreyfingin og þingmenn verða að taka til sinna ráða
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus, segir ástæðuna fyrir uppsögninni augljósa og skrifar eftirfarandi á Facebook:
„Auðvitað var Hirti sagt upp vegna hinnar miklu og góðu baráttu hans utan starfs gegn tillögunni um að hefja á ný aðildarviðræður að ESB. Eins og hann sagði sjálfur, voru ekki gerðar neinar athugasemdir við frammistöðu hans í starfi.“
„Þessu verður að mótmæla kröftuglega og krefjast þess, að uppsögnin verði dregin til baka. Nei-hreyfingin og þingmenn verða að taka til sinna ráða.“
Þjóðólfur tekur undir þessi orð. Skera verður burtu vókmeinið úr kerfinu. Að öðrum kosti er ekki langt í svipað stjórnarfar á Íslandi og gildir í alræðisríkjum fas- og sósíalismans.
