Ólafur Ragnar sló í gegn

Óhætt mun vera að segja að fyrrverandi forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson hafi slegið í gegn á fundi grasrótarhreyfingarinnar Áfram Íslands sem haldinn var í dag í Reykjavík. Var Sjálfstæðishúsið gamla troðfullt og fólk utan dyra og í andyri hótelsins við hliðna svo áhuginn var gríðarlega mikill. Aðstandendur fundarins töldu að um 3 þúsund manns hefðu mætt, RÚV deildi í töluna með þremur svo úr varð eitt þúsund. Þeim hlýtur að gremjast í Efstaleiti að hjarta þjóðarinnar slær með Nei við ESB.

Ólafur Ragnar Grímsson sýndi glæsilega fram á að það væri villukenning að ræða um Evrópusambandið sem eitthvað algjörlega óþekkt dæmi og bað menn um að virða það við Jóhönnustjórnina að þau hefðu rætt það skýrt að Ísland væri að sækja um inngöngu í ríkjabandalagið. Núverandi ríkisstjórn talar hins vegar eins og ESB sé algjörlega ný og óþekkt stærð og það þurfi að kynna sér málið. Ólafur sagði að lýðveldið mætti aldrei falla í hendur erlendra ráðamanna sem enginn hefði kosið. Var margoft hlegið og klappað fyrir honum á fundinum og féllu orð fv. forseta mjög vel á fundinum og rómur gerður að ræðu hans á eftir. Aðrir sem töluðu voru Björn Zoega læknir og Lára Herborg Ólafsdóttir, lögmaður. Fundarstjóri var Halldór Benjamín Þorbergsson.

Hér að neðan má sjá afrit af myndbandi með ræðu Ólafs Ragnars Grímssonar. Meira síðar.