Samfélaginu er stjórnað með fimm stórum blekkingum sem allar eiga það sameiginlegt að lifa á skattfé almennings. Þær njóta heldur ekki lýðræðislegs stuðnings og styrkja djúpríkið, segir finnski prófessorinn Paul Lillrank sumarræðu í Swebbtv. Paul Lillrank er hagfræðingur og varð doktor við háskólann í Helsingfors 1988. Hann hefur unnið m.a. við Viðskiptaháskólann í Stokkhólmi og einnig við gæðastjórn í Tækniháskóla Helsingfors. Hann vann lengi sem dálkahöfundur í Hufvudsatdsbladet og skrifaði grein ár 2017 sem vakti mikla athygli um að Finnum stafaði meiri hætta af samfélagsþróuninni í Svíþjóð en af Rússlandi.
Í nýjum þætti á Swebbtv ræðir Paul Lillrank, finnskur prófessor emeritus í framleiðsluhagfræði, meðal annars um það sem hann kallar hinar fimm stóru blekkingar: innflytjendamál, loftslagsmál, kynjamál, heimsfaraldurinn og stríðið í Úkraínu.
Hann útskýrir nánar hvað hann á við:
– Blekking er pólitísk áætlun sem byggir á ósjálfbærum forsendum, þjónar sérhagsmunum en skaðar almenning.
Að sögn Lillranks eiga þessar fimm blekkingar það sameiginlegt að þær skorti lýðræðislegs umboðs, eru fjármagnaðar af skattfé og stuðli að því að gera hið svokallaða djúpríki enn þá dýpra. Jafnframt hafi þær áhrif á fjórar grunnstoðir vestrænnar siðmenningar.
Í kjölfarið verða til önnur fyrirbæri, eins og það sem hann kallar styrkjakapítalismann:
– Það er auðveldara að ræna skattgreiðendur en að selja kröfuhörðum neytendum vörur og þjónustu,
Hann bætir við að til þess að geta seilst í vasa almennings þurfi alltaf ákveðna frásögn eða réttlætingu:
– Loftslagsmálin hafa orðið réttlæting fyrir því að ganga á náttúruna og dæla fjármunum í viðskiptalíkön sem hefðu aldrei staðist á frjálsum markaði. Sameiginlegt með þessum fimm blekkingum er að þær eru allar háðar skattfé almennings.
Hér að neðan má hlýða á sumarræðu prófessorsins:
