Ó, hve Össur & Bogi eru blindir á samtíð sína …

Sögulegur atburður hefur gerst í Bandaríkjunum. Robert F. Kennedy jr. [1954-] hefur formlega gengið til liðs við Repúblikanaflokkinn og yfirgefið Demókrataflokkinn. Þetta gerðist í Glendale Arizona á föstudag frammi fyrir tugþúsundum fagnandi stuðningsmönnum. Bandalag þeirra er sem landskjálfti í Ameríku. Höfuð Kennedy-ættarinnar hefur rofið áttatíu ára órofa vinstri demókratasamfylgd ættar sinnar og tekið höndum saman við Donald Trump [1946-].

https://www.youtube.com/watch?v=BR3fuaKrEwU Þegar Robert F. Kennedy steig á svið voru fagnaðarlætin nánast taumlaus. Kennedy að eigin sögn vill rjúfa samfylgd Demókrataflokksins við amerískt stórkapital; Big-Money; hann vill stöðva tengsl við Big-Food sem hefur gert ameríkana [og íslendinga] offeitt undirmálsfólk; hann vill stöðva sífelldar plágur lyfjarisa; Big-Pharma sem gerir fólk veikara. Hann vill stöðva war on children;  bólusetningar barna sem hafa gert amerísk börn þau veikustu í heimi; stöðva flúorvæðingu sem forheimskar fólk. Hann vill stöðva cencorship ritskoðun falsmiðla; Fake-Media CNN, NYT, ABC, NBC og CBC. Hann vill stöðva ritskoðun Big-Tech samfélagsmiðla; Facebók, Instagram og rest. Hann vill stöðva vopnvæðingu dómskerfisins. Þann 12. ágúst var Kennedy dæmdur af kjörskrá í New York. „Demókratar hafa svívirt lýðræðið,“ sagði hann þá. Hið sama hefði gerst í ofsóknum á hendur Donald Trump fyrir dómstólum. Þeir félagar féllust í faðma og hétu að taka höndum saman um þessi baráttumál. Trump hét ítarlegri rannsókn á morðinu á föðurbróður Roberts, John F. Kennedy forseta sem og morðtilræðinu á hendur sér. Trump leiðir uppreisn bandarísks alþýðufólks og tekið yfir Repúblikanaflokkinn.

https://www.facebook.com/reel/517445050662505 Aldrei í sögu stjórnmála hafa aðrar eins samkomur sést og Ameríka í fyrsta sæti; MAGA. Síðast en ekki síst ætla Kennedy og Trump að stöðva Endalausar styrjaldir amerískrar hermaskínu; Military Complex hinna illræmdu neo-cons í Washington. Árið 2020 frömdu Demókratar valdarán í Washington með svívirðilegum kosningasvikum í skjóli falsmiðla. „Það stendur yfir árás  á frelsi og lýðræði,“ segir Kennedy.

Hið svívirðilega morð á Kennedy forseta 1963

Hallur Hallsson er fæddur 1951, Bogi Ágústsson 1952 og Össur Skarphéðinsson 1953 og Robert F. Kennedy jr. 1954. Allir upplifðu sterkt þegar John F. Kennedy [1917-1963] forseti Bandaríkjanna var skotinn til bana á svívirðilegan hátt í Dallas Texas og Robert F. Kennedy [1925-1968] í LA Kaliforníu 1968. Það kom síðar í ljós að morðin á báðum voru samsæri. Enn í dag neitar CIA að láta af hendi skjöl um morðið í Dallas. Dwight D. Eisenhower [1890-1969] forseti, fyrrum hershöfðingi varaði 1961 við hættunni af amerískri hermaskínu; Militiary Complex. Lyndon B . Johnson [1908-1973] varaforseti hitti samsærismenn kvöldið fyrir voðaatburðinn, George HW Bush [1924-2018] síðar forstjóri CIA var í Dallas örlagadaginn þó hann hafi því neitað. Það var framið valdarán í Ameríku og þeir lugu, fjölmiðlarnir lugu, Warren-nefndin laug. Þeir sögðu að “loner” Lee Harvey Oswald hefði verið að verki og hefði skotið Kennedy. Oswald var drepinn. Warren-nefndin breiddi yfir glæpinn. Það var samsæri, fleiri skotmenn svo sem Jim Garrison saksóknari leiddi í ljós í Louisana 1969 og sjá má í mynd Oliver Stone, JFK.

Nokkrum mánuðum eftir illskuverkið í Dallas lýstu Bandaríkin yfir stríði á hendur N-Víetnam á grundvelli lygaatburðar á Tonkinflóa. Robert F. Kennedy leiddi baráttuna gegn stríðinu. Árið 1967 gaf CIA út tilskipun um notkun orðsins samsæriskenning; Conspiracy Theory. Fyrst blaða að nota orðið var New York Times. Árið 1981 var Ronald Reagan [1911-1989] forseta sýnt banatilræði fyrir utan hótel í Washington DC. Bush var varaforseti. John F. Kennedy jr. [1960-1999] lést vofveiflega í flugslysi. Tveimur árum síðar 2001 var 11. september; 9/11í tíð Bush jr. þegar Tvíburaturnarnir hrundu. Baráttan þúsunda um að upplýsa 9/11 er viðvarandi og stöðugt berast upplýsingar um ameríska ríkisárás á 9/11; Inside Job. Í kjölfarið fylgdu Endalasar styrjaldir. Árið 2024 var Donald J. Trump [1946-] sýnt banatilræði í  Butler Pennsylvaníu. Það var ríkistilræði, tveir skotmenn, tíu skot tveir rifflar hljóðgreindir. Djúpríkið enn á ferð enn eitt ríkistilræðið nú undir Biden-stjórninni. Djúpríkið kom í veg fyrir valdsetu Kennedybræðra á sjötta áratugnum þegar framin voru ríkismorð sem leiddu Ameríku á veg fasisma og styrjalda.

Össur gat stöðvað árásarstríð Nato á Líbýu 2011

Össur & Bogi virðast ekkert hafa lært, jafn vegvilltir þó bandarísk alþýða sé að átta sig á glæpum Djúpríkisins. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra [2009-2013] gat leitt Icesavebaráttu þjóðar sinnar og komið í veg fyrir árásarstríð Nato á Líbýu 2011. Hann gerði hvorugt. Þúsundir féllu þegar þúsundum Nato sprengja var varpað á varnarlausa Lýbíu sem leiddi til upplausnar Líbýu. Það er eitt af mörgum útþenslustríðum Nató gegn varnarlausum þjóðum. Össur er kappsfullur stuðningsmaður ellihrums stríðsforseta Joe Biden og nú gerspilltrar Kamilu Harris sem mun halda áfram árásarstríðum Ameríku, útþenslu Nato, opnum landamærum og magna kommúníska efnahagstefnu. Harris stýrði landamærum Biden-stjórnarinnar. Hún var sögð Border-Zar sem opnaði landamærin sem leitt hefur hörmungar yfir bandaríska alþýðu og glæpaöldu svo Svíþjóð er sem barnavöllur. Í skjóli Harris hafa glæpaklíkur stýrt landamærunum þar sem konum og börnum er smyglað inn. ICE landamærastofnunin kveður 390 þúsund börn týnd, enginn veit hvar eru smyglað inn að illmennum. Er ekki merkilegt að Össur er harður andstæðingur yfirlýstra friðarsinna sem vilja stöðva Endalaus árásarstríð Ameríku! Þetta er ekki hægt að skálda.  

Bogi hefur leitt ritskoðun RÚV

Bogi Ágústsson hefur leitt ritskoðun RÚV um áratugaskeið. Hans ferill er dapurlegur. Ömurleg var rógsgrein hans; Rugludallurinn Robert Kennedy 22. ágúst sl. þegar lygi hans var afhjúpuð. RÚV var knúið til þess að leiðrétta róg Boga um uppljóatranir Kennedy um skaðsemi flúor. Una Emilsdóttir sérfræðilæknir afhjúpaði svívirðilegan róg. Una benti á þá staðreynd því hærri flúorgild mælist í mæðrum, því lægri greindarvísitala sé í börnum. Hefur Bogi beðist afsökunar? Það sem er ekki síður mikilvægara, biðjast heilbrigðisyfirvöld og tannlæknar afsökunar á þessari illsku? Af hverju öll hvatningin um mikilvægi flúors. Sagan mun dæma Össur & Boga í röngu liði á miklum umbrotatímum. Ömurlegastur er þó málflutningur sjálfstæðismannsins Friðjóns Friðjónssonar sem er sem óupplýstur kjáni á RÚV og Stöö2. Sjállfstæðisfokkurinn eru dapurlega óupplýstur um samtíð sína, þessi flokkur sem eitt sinn var ankeri þjóðar er nú stefnulaust rekald.

Fara efst á síðu