Nýjasta vopn ESB gegn Viktor Orbán: Karlar í brjóstahöldurum og háhæluðum skóm

Nýjasta vopn Evrópusambandsins gegn hinni vinsælu ríkisstjórn Viktor Orbáns í Ungverjalandi.

Evrópusambandið hefur einkennilega áráttu að blanda sér í innanríkismál ríkja með valdhafa sem gagnrýna stefnu sambandsins. Við höfum horft upp á baráttu ESB gegn fullveldishreyfingum í aðildarríkjum eins og Póllandi, Rúmeníu og Ungverjalandi og innanlandsátökum í öðrum löndum þar sem fullveldissinnar ráða ríkjum en ESB-hreyfingar gera allt til að eyðileggja störf stjórnvalda til að koma löndum sínum inn í ESB. Á slíkri vegferð er Ísland og undirbúningur fyrir flöggun ESB-fánans um allt land er flöggun fána Samtakanna 78 sem ein allra félaga á Íslandi hafa fengið fána sínum flaggað á öllum opinberum fánastöngum og sá íslenski lotið í lægra haldi a.m.k. tímabundið á meðan. 

Gleðiganga gærdagsins í Búdapest hefur aldrei verið fjölmennari. Ekki var einungis um innfædda að ræða, því Ursula von der Leyen valkyrja framkvæmdastjórnar ESB hafði auglýst rækilega að hirðin í Brussel styddi hinsegin Ungverja og hvatti alla til að ganga með í göngu borgarstjóra Búdapest gegn ríkisstjórn Ungverjalands sem sögð var banna göngur og hreyfingu hinsegin fólks. Tugir ef ekki á annað hundrað ESB-þingmenn þustu til Búdapest, nokkrir frá Svíþjóð, fleiri frá Spáni sem tilkynnti með góðum fyrirvara að sent yrði fólk til þessarar mikilvægu hinsegin mannréttindabaráttu. Aðallega er þetta fólk frá vinstri kantinum sem setur blinda augað á eyðileggingu lífs fjölda barna sem hafa verið sett í transenstein líkamstilraunastarfsemi. Líf margra barna hefur verið eyðilagt og viðkomandi séð eftir öllu saman en ekki hægt að hverfa frá transenstein.

Sennilega er hvergi jafnöruggt að vera hinsegin og í Ungverjalandi miðað við almenna glæpatíðni samanborið við önnur lönd ESB eins og Frakkland, Þýskaland að ekki sé nú minnst á Svíþjóð. Lögin sem ríkisstjórn Viktor Orbán setti voru til að vernda börn, að ekki mætti tala þau til að fara í kynskiptingaraðgerðir undir 18 ára aldri. Þá verða flestir sjálfráða í lagalegum skilningi og flestir hafa einnig náð kynþroska og allar forsendur betri fyrir slíkum mikilvægum ákvörðunum eins og óafturkræfum kynskurðaðgerðum.

Ríkisstjórn Viktor Orbáns hefur ekkert út á hinsegin hreyfingar að setja nema að einu leyti: Yfirvöld vilja ekki að hinsegin fólk sé að kássast með sýningar á berrössuðum fullorðnum fyrir framan börn á almannafæri. Slíkt er yfirleitt bannað og talið til afbrigðilegs hátternis að sýna börnum kynfærin og af hverju ætti hið sama ekki að gilda um skrúðgöngur félagasamtaka á götum úti?  Þess vegna settu yfirvöld skilyrði fyrir því að slíkar göngur og samkomur yrðu haldnar á afmörkuðum svæðum þar sem börn hafa ekki aðgang. 

Myndir frá gleðigöngunni í gær í Búdapest. Emma Wiesner ESB-þingmaður sænska Miðflokksins er sú sem heldur á regnbogafánanum á báðum myndum. Hún birti myndina til vinstri á félagsmiðlum með afstöðu sinni til Viktor Orbán forsætisráðherra Ungverjalands.

Um tveir þriðju hluti þjóðarinnar kaus ríkisstjórnina síðast og getur varla nokkur ríkisstjórn í neinu ESB landi státað sig af slíku fylgi. Ungverjar vilja ekki að verið sé að troða klámi upp á ókynþroska börn í barnaskólum landsins. Slík áreitni er ekki leyfð í Ungverjalandi, í Bandaríkjunum er verið að tryggja foreldrum rétt að taka börn sín úr þeim skólum sem stunda slíka háttsemi. Til viðbótar kemur svo hið sjálfsagða og eðlilega: Kynin eru einungis tvö, maður og kona eins og guð skapaði þau.

Mannréttindafélög hinsegin fólks eru orðið pólitískt verkfæri fyrir vinstri menn til að nota í valdabaráttu um yfirráðin í þjóðfélaginu. Hvaða mannréttindi eru fólgin í því að rugla börn svo mikið að þau fara að trúa því að það að skera burtu kynfærin tryggi þeim hamingju í framtíðinni? 

Þótt gleðigangan í Búdapest hafi verið ólögleg, þá sagði forsætisráðherra Ungverjalands að engu ofbeldi yrði beitt. Gleðigangan í Búdapest hefur breyst í verkfæri hirðarinnar í Brussel sem gerir hvað sem er til að ná sér niður á ríkisstjórn Ungverjalands sem neitar að fylgja innflytjendastefnu ESB, neitar að vilja áframhaldandi stríð í Úkraínu og verðlaunar barneignir og fjölskyldumyndun í landinu. Ungverjaland lofar líka að standa í veginum fyrir því að Úkraína verði meðlimur í ESB. Hirðin í Brussel er rasandi og talar um að sparka landinu úr ESB. 

ESB vill stríð í Úkraínu, skiptir út innfæddum fyrir aðflutta, leggst gegn kristilegum gildum um sambúð manns og konu og kyndir undir siðlaust kynlíf.

Merkustu fulltrúar ESB í Búdapest í gær voru hálfberir karlar sem klæðast brjóstahöldurum og dansa í háhæluðum skóm.

Það er nú sú eftirsóknarverða dýrð sem Viðreisn og Samfylkingin leggja allt í sölurnar til að komast í.

Fara efst á síðu