Liz Truss, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. Mynd: Bandaríska utanríkisráðuneytið / Freddie Everett
Vesturlönd lúta nýju formi kommúnisma þar sem valdhafar vinna ekki að hagsmunum landa sinna heldur vilja þvert á móti skaða þau, fullyrðir Liz Truss, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, í viðtali.

– Þeir vilja skaða það. Það er þetta sem fólk verður að skilja. Þeir vilja skaða landið. Þeir hafa ekki trú á Bretlandi. Þeir hafa ekki trú á breskri hefð. Þeir hata breska heimsveldið. Þeir vilja lifa í hnattvæddu nirvana þar sem engin landamæri eru, segir hún.
– Þeir trúa ekki á ættjarðarást. Þeir trúa ekki á þjóð sína. Þeir trúa á þessi tækniræðislegu gildi. Þeir telja sig vita best hvernig eigi að stjórna hlutunum. Þeir trúa á miðstýrða áætlanagerð. Þetta er ný útgáfa af kommúnisma. Fyrir nokkrum dögum birtist mjög áhugavert graf sem sýnir opinber útgjöld á mann. Bretland og Frakkland eru nú á sama stigi og Sovétríkin.
Í viðtali við The Mike Graham Show ræðir Truss meðal annars hverjir fari í raun með völdin og hvað knýi þá áfram. Englandsbanki sé valdamesta stofnun Bretlands og völdin liggi þar fremur en hjá stjórnmálamönnum, segir hún. Þar ráði embættismenn ríkjum. Þessir ókjörnu embættismenn láti stjórnast af hugmyndum á borð við hnattvæðingarhyggju, „nettó núll“ í losun gróðurhúsalofttegunda og opin landamæri. Þeir hafi í raun ekki hagsmuni landsins að leiðarljósi. Þetta eigi þó ekki aðeins við um Bretland.
"They WANT to damage the country… It’s a new version of communism." According to former UK PM Lizz Truss, a prevailing groupthink among unelected government bureaucrats drives policies favouring globalism, Net Zero, and open borders. She warns these unaccountable officials misuse their power to deliberately undermine Western civilisation in favour of technocratic, centrally planned agendas. "They don’t believe in patriotism. They don’t believe in their nation. They believe in these technocratic values. They think that they know best about how to run things. They believe in central planning."
— Wide Awake Media (@wideawake_media) October 31, 2026
