Ný skoðanakönnun sýnir að Umbótaflokkur Nigel Farage hefur 9% meira fylgi en Verkamannaflokkurinn

Eftir hrikalega viku þar sem Keir Starmer, forsætisráðherra Verkamannaflokksins, sýndi rétt andlit sitt með því aðláta þingið samþykkja fóstureyðingu „fram að fæðingu“ og aðstoða Breta við sjálfsvíg, þá koma hér bæði góðar og slæmar fréttir.

Góðu fréttirnar eru þær að hetjur skynseminnar í Umbótaflokki UK eru núna að undirbúa sig til að vinna meirihlutann í næstu almennu kosningum í Bretlandi. Nýleg skoðanakönnun sýnir að meira en þriðjungur kjósenda myndu kjósa flokks Nigel Farage ef það væru kosningar í dag. Telegraph greint frá:

„Skoðanakönnun Ipsos sýnir að Umbótaflokkurinn fengi 34%, níu prósentum meira en Verkamannaflokkurinn með 25%. Íhaldsflokkurinn rekur lestina með 15%.

Þetta er mesta fylgi sem Umbótaflokkurinn hefur mælst með í skoðanakönnun og mun nær örugglega duga til að veita Nigel Farage þægilegan þingmeirihluta. Nigel Farage sagði við The Telegraph:

„Þessi skoðanakönnun sýnir að Umbótaflokkurinn getur og mun vinna næstu almennar kosningar.“

Slæmu fréttirnar eru þær að næstu almennu kosningar í Bretlandi koma ekki fyrr en árið 2029. Verður eitthvað Bretland eftir þá sem hægt verður að bjarga?

„Greining Telegraph bendir til þess að ef niðurstöður skoðanakönnunarinnar yrðu kosningaúrslit 2029, þá myndi Umbótaflokkurinn fá 400 þingsæti, sem gæfi flokknum tæplega 200 þingsæta meirihluta og Nigel Farage yrði forsætisráðherra. Íhaldsflokkurinn fengi færri en 10 sæti, Verkamannaflokkurinn 140 og myndi tapa þeim 270 sætum sem hann hefur núna.“

Stuðningur við Verkamannaflokkinn er að gufa upp, fylgið er komið niður í tölur sem hafa ekki sést síðan í október 2019.

„Sir Keir Starmer er óvinsælasti forsætisráðherra á þessu stigi kjörtímabils síns síðan Ipsos byrjaði að taka saman slíkar heimildir fyrir tæpri hálfri öld. Aðeins 19% svarenda sögðust vera ánægðir með starfið sem hann var að vinna en 73% eru óánægð.“

Fara efst á síðu