Góða fólkið á Íslandi er sokkið upp að mitti í feni haturs og haturslaga. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, greinir frá stefnu Solaris og lögmanni þeirra Helgu Völu Helgadóttur, fyrrverandi þingmanni Samfylkingarinnar, fyrir meiðyrði. Samkvæmt stefnunni er þess krafist að þrjú ummæli Guðrúnar í Spursmálum frá 28. nóvember 2025 verði dæmd dauð og ómerk, að Guðrún greiði 4 milljónir króna í miskabætur og að hún birti opinbera afsökunarbeiðni.
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar á Facebook:
„Í stefnunni kemur fram að eftirfarandi ummæli verði dæmd dauð og ómerk:
„ … hvað þá heldur þegar einstaklingar hér í samfélaginu voru að fara að landamærunum í Egyptalandi, til þess að ná fólki út sem enginn vissi deili á“
„ … en það gengur náttúrulega alls ekki að hér sé eitthvað, einhver samtök sem kalla sig frjáls félagasamtök, að þau séu einhvern veginn með mútugreiðslum og öðru að taka fólk yfir landamærin sem eru lokuð og koma því fólki hér inn í landið, það gengur engan veginn.“
„ … Jah, ég ætla að leiða að því líkum að þegar að fólk er hér með einhverjar safnanir í gangi og fer með peninga út og er að greiða fyrir ákveðna þjónustu eins og einhverjir sagði, á einhverri skrifstofu í Kaíró, eða hvar sem það nú var, að fyrir hvað ertu að borga, uuu, mjög háar fjárhæðir?“
Það er greinilegt að samtökin Solaris vilja með stefnunni fá dómstóla til að hefta tjáningarfrelsi mitt sem varið er af stjórnarskrá Íslands og mannréttindasáttmála Evrópu.
Þessi málatilbúnaður sýnir fyrst og fremst að þörfin fyrir opna umræðu um þennan málaflokk er meiri en nokkru sinni. Slík umræða verður ekki þögguð niður með lögsóknum.
Ég mun taka til varna með þjóðarhagsmuni að leiðarljósi.“
Góða vinstra ofstækisfólkið, þolir hvorki umræðu né gagnrýni. Nota á fyrirmynd ríkisstjórnarinnar sem beitti kjarnorkuákvæði til að stöðva lýðræðislegar umræður á Alþingi vegna ofsókna og valdníðslu ríkisstjórnarinnar gegn útgerðarmönnum. Þetta verður gott mál sem vekur athygli á spillingu og svindli vinstri manna, sem bruðla með fé til að sækja fólk sem enginn þekkir deili á og flytja til Íslands. Allir sjá vaxandi ofbeldi á Íslandi eins og dæmin sanna í ofbeldisárásum og innbrotum.
Þjóðólfur stendur með formanni Sjálfstæðisflokksins í þessari baráttu. Það verður að setja málfrelsislínuna:
Hingað og ekki lengra!
