New York Post: Demókratar fá Óskarinn í ár …

Flokksþingi demókrata lauk með ræðu hinnar sextugu Kamillu Harris sem var útnefnd forsetaefni DNC án þess að hafa hlotið atkvæði í prófkjöri án þess að hafa hlotið kjörmann til forseta, án þess að hafa komið fram fyrir þjóð sína eða svarað spurningum fréttamanna. Fylgislausum Joe Biden var velt úr valdastóli eftir að forysta Demókrata hótaði að beita sérstöku ákvæði Stjórnarskrár; 25. Amendment vegna elliglapa karlsins. Kamala Harris óvinsælasti varaforseti í sögu mælinga var fótosjoppuð og líkt við frelsisgyðju. New York Post kveður sjónarspilið verðskulda Óskar-verðlaunin í ár.

Dauðakúltúr demókrata fyrir allra augum í Chicago …

Demókratar standa fyrir opin landamæri; 15-18 milljónir komið inn síðustu 4 ár sem hefur leitt til glæpaöldu á við margfalda sænska vísu. Kamalla stýrði landamærstefnu Biden kölluð border-zar. Demókratar standa fyrir kynvæðingu barna í skólum sem leiðir til transvæðingar barna reist á “sjálf-ræðis-frelsi” heilaþvotti í skólum. Börn eru færð á altari lyfjarisa; Big-Pharma og sölumanna þeirra, lækna með hnífa, pillur og sprautur. Úti fyrir þinginu var sérstakur fósturdrápsbíll Planned parenthood, samtaka sem þiggja 70 milljarða ríkisfé til að lífláta börn í móðurkviði. Hér verður að skrifa íslensku. Fyrir utan DNC var boðið upp á blóðfórnir barna sem við þekkjum úr sögu fornaldar.

Á fyrsta degi þingsins voru 25 börn svipt rétti til lífs, helgasta rétti hvers einstaklings, samkvæmt Sjálfstæðisyfirlýsingu Bandaríkjannna 1776. Fátt lýsir dauðakúltúr demókrata betur. Demókratar eru á móti framvísun skilríkja við kosningar. Demókratar vilja opin landamæri öllum opin án vitneskju um uppruna. Á flokksþingi DNC var krafist skilríkja. Vinur minn Össur Skarphéðinsson heldur ekki vatni af hrifningu yfir öllu þessu og styrjöldum Washington. Össur gat stöðvað Lýbíu-stríðið en gerði það ekki. Er það ekki merkilegt hvað fólk er blint á lygi hinna ríku og voldugu?

Þjóðvarðlið kallað til Chicago …

Úti fyrir mótmæltu um eitt hundrað þúsund manns í hörðum átökum við hundruð lögreglumanna, 250 Þjóðvarðliðar voru sendir á vettvang eftr ákall forystu DNC. Mótmælendur rufu varnargirðingar sem reistar voru. Þetta földu falsmiðlar. Mótmæli voru gegn Ísrael, stuðningur við Palestínu, furðukonur dressaðar sem pillur til stuðnings fósturdrápum. Bandaríska þjóðin er í uppreisn gegn hinum amerísku demókrötum og falsmiðlum í eigu ofsaríkra. Menn kvarta yfir sægreifum okkar, en klíkan sem stýrir vestrænni stríðsumræðu er talin á fingrum handa manneskju. Flaggskip þeirra eru CNN og New York Times ásamt Facebók, leidd af ríkismiðlum BBC og RÚV. Þennan dauðakúltúr hinna ríku og voldugu wefara bergmála fréttastofur okkar gagnrýnilaust.

Kennedy og flokksþing DNC í Chicago 1968 og 2024

Sérstaka athygli vakti útgáfan af Hilary Clinton nánast eins og unglingstúlka. Flokksþingið í Chicago minnir á óeirðirnar sem lamaði flokksþingið 1968 eftir að Robert F. Kennedy [1925-1968] var skotinn til bana af sömu klíku og drap bróður hans forsetann John F. Kennedy [1917-1963]. Dauðaklíka military-complex drap bræðurna. Robert Kennedy hafði hlotið útnefningu demókrata en var drepinn líkt og bróður sinn. John F. Kennedy jr. [1960-1999] lést vofveiflega í flugslysi. Það er ekki tilviljun að Robert Kennedy jr. [1954] er að ganga til liðs við Donald Trump sem hefur heitið að binda endi á Endalausar styrjaldir Military Complex. Össur Skarphéðisson á móti, að virðist. Er þetta ekki stórmerkilegt. Kennedy hóf baráttu sína innan demókrata gegn Joe Biden en var flæmdur á brott. Þá hefur hin skelegga Tulsi Gabbard [1981] gerst flóttamaður úr ranni demókrata en hún afhjúpaði spillingu Kamölu Harris sem saksóknara í San Fransisco.

Fara efst á síðu