Nei, við skulum ekki kaupa handa þeim fleiri vopn

Haraldur Ólafsson, formaður Heimssýnar, hreyfingar sjálfstæðissinna í Evrópumálum segir í grein í Vísi í gær að Íslendingar verði að staldra við og endurskoða afstöðuna til að kaupa sprengjur og vopn og senda til útlanda. Taka ber undir orð Haralds en hann er landskunnur fullveldissinni og hefur í mörg ár talað fyrir almennri skynsemi í málefnum lítillar þjóðar okkar, Íslands.

Haraldur Ólafsson skrifar:

„Það er árátta Evrópumanna, og reyndar fleiri, að þurfa að fara í stríð öðru hverju. Þannig er saga Evrópu frá öndverðu. Þótt flestir segist kjósa frið reynist krafturinn sem togar í stríð stundum sterkari. Það er ekki á hvers manns færi að skilja það. Núna hefur verið barist óralengi í Úkraínu og heimildir benda til að búið sé að drepa um milljón ungra manna og um milljón menn hafi verið limlestir. Sjálfsagt hafa sumir varpað sér sjálfviljugir í kvörnina, eftir að hafa látið ginnast af fagurgala stríðsæsingamanna, en aðrir verið neyddir á vígvöllinn.“

Flestallir vilja frið

Haraldur gerir að umtalsefni, að flestallir vilji frið, þótt ráðamenn vilji annað. Hann spyr hvort Íslendingar eigi að finna þann sem skárri hefur málstaðinn, þegar Evrópumenn detta svona hressilega í það og kaupa handa honum byssur og sprengjur til að manndrápin geti haldið takti?

„Eða fer okkur kannski betur að reyna að bera klæði á vopnin? Nú finnst kannski einhverjum að vonda liðið sé lítils virði, það megi deyja. En það verður ekki þannig, þótt aðeins annað liðið fái fleiri sprengjur að gjöf. Menn deyja á báða bóga, líklega flestir í því liði sem er að tapa. Sá aðili er að verða uppiskroppa með kjöt í kvarnirnar og útvegar sér meira hráefni með því að sækja menn með valdi á götum úti í bæjum og borgum eða í landamæraskógunum þar sem þeir reyna að sleppa út úr ríki villimennskunnar. Þeir sem næst í eru klæddir í búning og sigað á virki hins liðsins þar sem þeir eru skotnir eða sprengdir samdægurs. Er það verkefni sem Íslendingar vilja borga fyrir, svo það geti haldið áfram?“

Ekki munu foreldrar, ekkjur og börn þeirra Rússa og Úkraínumanna sem íslensk keypt vopn drepa til viðbótar þakka Íslendingum

Haraldur endar greinina:

„Hver verður svo til að þakka Íslendingum að leik loknum fyrir að hafa framlengt drápin og eyðilegginguna? Ætli það verði foreldrar, ekkjur og börn þeirra Rússa og Úkraínumanna sem voru drepnir til viðbótar, vegna þess að það var hægt að útvega meiri skotfæri með aðstoð Íslendinga? Nei, líklega ekki. Það mun enginn þakka fyrir gjörning af þessu tagi, en margir munu reyna að gleyma honum sem allra fyrst.“

Fara efst á síðu