Valkyrjurnar eru órjúfanlegur hluti af ESB-fjölskyldunni, Ísland ekki.
Nýlega sagði Maxime Prévot, utanríkisráðherra Belgíu, í heimsókn til Íslands ásamt utanríkisráðherrum Hollands og Lúxemburg, að þeir teldu „að Ísland sé sannarlega fullgildur meðlimur evrópsku fjölskyldunnar.“ Í frétt utanríkisráðuneytisins frá 17. september er haft eftir Þorgerði Katrínu, utanríkisráðherra Íslands að „við séum sannarlega órjúfanlegur hluti af Evrópufjölskyldunni.“ Ísland er ekki meðlimur í Evrópusambandinu og ætlar sér ekki að vera það um ókomna tíð enda allt á niðurleið í efnahags-, orku og innflytjendamálum í álfunni. Ísland sagði Nei við því að undirgangast erlent ofurríki og frábiður sér allt tal um að verða „órjúfanlegur hluti“ þess ríkjasambands sem boðar heimsvaldastefnu og heimsyfirráð.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem talað er um fjölskyldu til að plata fólk til að gefa upp sjálfsákvörðunarréttinn til erlends stórveldis. Þjóðverjar notuðu þetta ákaft í áróðri hér áður fyrr enda voru germanskar þjóðir taldar blóðskyldar Þjóðverjum í kynþáttaflokkun nazista. Þjóðólfur bað gervigreindina að sækja heimildir um málið. Þar koma meðal annars fyrir þessi hugtök:
- Germanische Völker – „germanskar þjóðir“.
- Nordische Rasse – „norrænn kynstofn“.
- Großgermanisches Reich – „stórgermanskt ríki“, hugmynd um víðara ríki undir þýskri forystu.
- Deutsches oder artverwandtes Blut – „þýskt eða skylt blóð“, orðalag úr kynþáttaflokkun nasista. Rannsókn í DiVA-gagnasafninu, skýring helfararsafnsins á hugtakinu „arískur“.
Svíar voru taldir til þessa hóps, ásamt Norðmönnum, Dönum, Hollendingum, Flæmingjum og einnig Íslendingum. Rannsóknin í DiVA tekur sérstaklega fram að Svíar og Íslendingar hafi komið sjaldnar við sögu í þessari orðræðu en þær þjóðir sem Þjóðverjar hernámu. Hugmyndin fól í sér að Þýskaland ætti að gegna forystuhlutverki innan þessa ætlaða germanska samfélags. „Fjölskyldan“ var því fremur hópur meintra blóðskyldra þjóða en samtök jafnrétthárra ríkja.
Þessi meinta frændsemi tryggði þó ekki virðingu fyrir sjálfstæði þjóðanna. Þýskaland réðst inn í Danmörku og Noreg 9. apríl 1940, þótt íbúarnir væru taldir til „germanskra“ frændþjóða. Það sýnir muninn á orðræðunni um skyldleika og framkvæmd valdapólitíkurinnar, sbr. þýska sögusafnið. Þrátt fyrir tal nazista um „fjölskylduna“ þá var virðing þeirra fyrir öðrum fjölskyldumeðlimum ekki meiri en þetta.
Sagan kennir okkur að fara varlega, þegar erlendir pótintátar koma frá stórveldi meginlandsins með tal um „fjölskyldu.“ Viðvörunarbjöllurnar fara í gang þegar rætt er um stöðu Íslands sem „órjúfanlegan hluta af Evrópufjölskyldunni.“ Sagan sýnir að ef Þjóðverjar þess tíma eins og ESB vorra tíma fá ekki sínum vilja framgengt, þá má búast við að viðkomandi finni eigin leiðir til að tukta til óþekka „fjölskyldumeðlimi.“
ESB er þekkt fyrir að taka ekki nei sem svari. ESB herdeildin á Íslandi og í Brussel munu halda áfram að brugga sín leyniráð um hvernig stórveldinu tekst að komast yfir Ísland með auðlindum sínum.
