Næststærsti flokkur Katalóníu á Spáni, Junts per Catalunya, tekur skýra afstöðu í umræðunni um trúartákn á almannafæri. Núna leggur flokkurinn til að slæður sem hylja allt andlit eins og búrka og niqab, verði bannaðar á almannafæri. Einnig vilja þeir banna allar gerðir af slæðum fyrir börn í skólum og á öðrum opinberum stöðum. Tillagan er sett fram til að vernda réttindi barna og berjast gegn kynbundinni mismunun.
Junts per Catalunya útskýrir að ný afstaða flokksins sé vegna þess að kjósendur þeirra og borgarstjóra svæðisins hafi áhyggjur. Flokkurinn telur að slæða, sérstaklega þegar stúlkur yngri en 16 ára bera hana, sé birtingarmynd kynjamismununar og brot á rétti barna til frelsis og jafnréttis við nám.
Jafnframt benda þeir á að búrka og níqab, sem hylja allt andlitið, skapi öryggisvandamál á almannafæri og stríði gegn þeim lýðræðislegu gildum sem samfélagið byggir á. Fulltrúar flokksins segja:
„Við samþykkjum ekki að börn alist upp í umhverfi þar sem frelsi þeirra er takmarkað af trúarlegum eða menningarlegum viðmiðum sem eiga ekki heima í nútímalýðræði.“
Sveitarfélög og héruð með frjálsar hendur
Þótt flokkurinn hafi ekki enn lagt fram neina raunhæfa tillögu að lagafrumvarpi á landsvísu hefur hann samþykkt stefnuskrá sem mun þjóna sem leiðbeiningar fyrir borgarstjóra Junts um alla Katalóníu. Þetta þýðir að hægt er að hefja innleiðingu á staðbundnum aðgerðum gegn notkun andlitsslæða í skólum, bókasöfnum, íþróttamannvirkjum og öðrum opinberum stöðum.
Einnig er hvatt til þess að borgarstjórar innan flokksins endurskoði reglur um notkun múslimskra sundfata, búrkínís, í sundlaugum sveitarfélaga – mál sem er rætt bæði út frá hollustuháttum og jafnréttissjónarmiðum kynjanna.
Frelsi kvenna og réttindi barna er ekki útlendingahatur
Junts leggur áherslu á að þeir sætti sig ekki við öfgastefnu frá neinni hlið hvorki hægri né vinstri. Fulltrúi flokksins segir:
„Við tökum umræðuna og gerum það af ábyrgð og virðingu fyrir lýðræðinu. Að berjast fyrir frelsi kvenna og réttindum barna er ekki útlendingahatur – það er heilbrigð skynsemi.“