Eyyûb Sultan-moskan í Strassborg rís til himins líkt og Leðurblökumerkið yfir Gotham og ætti að vera hvatning til aðgerða. Þessi gríðarstóra byggingasamstæða, sem á að verða ein stærsta moska Evrópu, gengur í berhögg við margar þeirra meginreglna sem borgin segist standa fyrir.
Minnisvarði um erlend áhrif
Moskan er aðeins nokkra kílómetra frá Evrópuþinginu og er undir stjórn Millî Görüş-hreyfingarinnar, sem var stofnuð í Tyrklandi. Samkvæmt fréttum hefur hún fengið fjárhagslegan stuðning frá Katar.
Tyrkland heldur áfram hernámi sínu á norðurhluta Kýpur, landsvæði sem tilheyrir Lýðveldinu Kýpur, aðildarríki ESB. Katar hefur á sama tíma verið sakað um að reyna að hafa áhrif á evrópska stefnumótun með spillingarmálinu sem almennt er kennt við Qatargate. Stjórnvöld í Doha neita þeim ásökunum.
Borgaryfirvöld í Strassborg samþykktu einnig í grundvallaratriðum 2,5 milljóna evra styrk til byggingar moskunnar, þrátt fyrir rótgróna hefð Frakka fyrir aðskilnaði trúar og ríkis.
Okkur er sagt að byggingasamstæðan sé nauðsynleg til að þjóna vaxandi hópi múslima í Strassborg. Samt er verið að ljúka við hana einmitt þegar Evrópusambandinu hefur mistekist að ná stjórn á ólöglegum fólksflutningum og Evrópubúar hafa sívaxandi áhyggjur af hryðjuverkum íslamista, árásum á kirkjur og versnandi almannaöryggi. Það myndi sannarlega vekja furðu ef rússneska rétttrúnaðarkirkjan reyndi að reisa risavaxna nýja dómkirkju í Kænugarði með stuðningi rússneska ríkisins.
Þeir hópar sósíalista og græningja sem hvöttu til þessa verkefnis ættu því að skilja að ögrun þeirra hefur mistekist. Eyyûb Sultan-moskan hefur ekki kallað fram þau viðbrögð sem þeir bjuggust við, vegna þess að flestir Evrópubúar samsama sig ekki þeim gildum sem verkefnið virðist ætlað að ögra. Evrópubúar eru ekki haldnir „íslamófóbíu“ þótt þeir spyrji hvers vegna erlend ríki og stjórnmálahreyfingar fjármagni stórfenglegar trúarbyggingar í þeim borgum þar sem stefna Evrópu er mótuð.
Þegar ESB beinir sér gegn Evrópu
Það er eitthvað næstum hefnigjarnt við Evrópusamband nútímans. Eftir að hafa mistekist að vinna hug og hjörtu þjóða Evrópu reynir það í auknum mæli að veikja sjálfsmynd þeirra, setja eitthvað tilbúið í hennar stað og refsa hverjum þeim sem mótmælir. Það er engin ráðgáta hvers vegna yfirvöld í Strassborg fagna athygli auðugra erlendra bakhjarla.
Helstu bakhjarlar Eyyûb Sultan-moskunnar eiga sér ekki rætur í Evrópu. Millî Görüş, pólitískt og trúarlegt tengslanet af tyrkneskum uppruna, leiðir verkefnið. Bæði Frakkland og Tyrkland skilgreina sig opinberlega sem veraldleg ríki, en í Strassborg býr stór hópur fólks af tyrkneskum uppruna og atkvæði þess skipta sitjandi borgarstjórn græningja máli. Þegar pólitísk afkoma er í húfi verða meginreglur um veraldlegt ríkisvald skyndilega samningsatriði.
Fylgjum peningunum
Skilja verður hlutverk Katar sem hluta af mun umfangsmeiri aðgerð til að auka áhrif þess. Í einni rannsókn var áætlað að Katar hefði veitt meira en 770 milljónir evra til 288 samtaka í vestrænum ríkjum á árunum 2004 til 2019 í formi „mannúðaraðstoðar“. Frá árinu 2016 hefur ríkið samkvæmt fréttum varið nærri 250 milljónum Bandaríkjadala í þjónustu hagsmunagæslu- og almannatengslafyrirtækja sem skráð eru í Bandaríkjunum. Það hefur einnig dælt milljörðum í bandaríska háskóla og hugveitur.
Í Evrópu hefur Katar samkvæmt fréttum varið um 70 milljónum evra til fjármögnunar moskna. Rannsókn Qatargate-málsins hefur á sama tíma leitt fram ásakanir um tengslanet þar sem reiðufé hafi verið látið af hendi í skiptum fyrir áhrif og núverandi og fyrrverandi Evrópuþingmenn, starfsmenn þingsins og tengdar stofnanir hafi komið við sögu.
Belgísk yfirvöld lögðu hald á um 1,5 milljónir evra í reiðufé við húsleitir sem tengdust rannsókninni. Nokkrir einstaklingar hafa verið sakaðir um refsiverða háttsemi, sem þeir neita, og Katar hefur ítrekað neitað að hafa reynt að kaupa sér pólitísk áhrif.
Eins og Upton Sinclair benti á er erfitt að fá mann til að skilja eitthvað þegar laun hans eru háð því að hann skilji það ekki. Ef örlát fjárframlög erlendis eru verðið fyrir vanþekkingu Vesturlanda á afskiptum Katar af evrópskum stjórnmálum og fjölmiðlum telur Katar greinilega þess virði að greiða það.
Rauðgræna samkomulagið
Undanlátssemi Katar gagnvart ráðamönnum úr röðum sósíalista og græningja innan Evrópusambandsins kann að vera tímabundin. Meðalþingmaður á Evrópuþinginu situr aðeins í nokkur ár.
Hugmyndafræðin sem verið er að koma til móts við hefur hins vegar mun meiri metnað. Pólitískt íslam er í grundvallaratriðum fjandsamlegt þeirri evrópsku siðmenningu sem ESB var að sögn stofnað til að vernda. Róttækustu fylgismenn þess stefna opinskátt að því að koma á íslamskri stjórn í Evrópu þegar fram líða stundir.
Evrópa hefur áður staðið frammi fyrir slíkum áformum. Veldi Ottómana náði yfir Balkanskaga allt að borgarhliðum Vínar og stjórn þeirra hélst víða í Grikklandi um aldir, allt fram á fyrri hluta tuttugustu aldar. Þessi hægfara pólitíska og menningarlega umbreyting, sem lengi hefur verið sýnileg um allan Balkanskaga og setur nú svip sinn á sjóndeildarhring einnar helstu höfuðborgar ESB, er að skapa tvö sífellt öflugri öfl.
Hið fyrra er þjóðernissinnað hægri afl í endursókn, sem er stolt af þjóðlegri og kristinni arfleifð Evrópu og hafnar þeirri veraldlegu hugmyndafræði sem Brussel þröngvar upp á fólk. Vöxtur þess er þegar sýnilegur um alla Evrópu og hver einasti Grikki skilur þær sögulegu minningar sem knýja það áfram þegar við minnumst frelsisins eftir aldalangt hernám Ottómana.
Hið síðara er hinn forni andstæðingur Evrópu í nýjum pólitískum búningi: metnaðurinn til að endurreisa kalífadæmi á evrópskri grund. En í stað þess að mæta þessari hreyfingu virðast vinstrisinnuð yfirvöld í Evrópu reiðubúin að nota hana sem farartæki til kosningasigurs. Þau ættu að muna að farartæki fara ekki alltaf í þá átt sem farþegarnir ætluðu sér.
Endursögn greinar gríska þingmannsins Emmanouil Fragkos í Visegrad 24
