Af öllum þeim margbreytilegu vandamálum í Frakklandi sem komið hafa í kjölfar sjálfsmorðsstefnu óhefts fjöldainnflutnings, þá eru íslamistar í samfélaginu það sem erfiðast er að glíma við.
Að sjálfsögðu neita múslimsk samfélög að þetta sé að gerast, en ný skýrsla sýnir að íslamistar hafa síast inn í stofnanir franska lýðveldisins og ógna raunverulega „þjóðarsamheldni“ Frakka. Skýrslan sýnir fram á „innrásarhyggju“ Múslímabræðralagsins í opinberar stofnanir til dæmis skóla og sveitarfélög.
– Eftir fund þjóðaröryggisráðsins bað Macron ríkisstjórnina að koma með „nýjar tillögur“ í byrjun næsta mánaðar í ljósi alvarleika niðurstaðna skýrslunnar. Heimildarmaður í Élysée-höllinni segir að nýtt fyrirbæri sé til staðar, innrásarhyggja, „sem er frábrugðin aðskilnaðarstefnu.“
Þó að aðskilnaðarstefna gefi til kynna að múslimar búi í hliðarsamfélögum í Frakklandi, þá þýðir innrásarhyggjan að taka eigi þátt í innviðum lýðveldisins … til að breyta því innan frá. Dagblaðið Le Figaro birti eintak af skýrslunni sem var gerð af Sambandi múslima í Frakklandi (FMF) sem tilheyrði Múslímabræðralaginu sem var stofnað fyrir 100 árum til að stuðla að endurkomu íslamskra gilda.

FMF stjórnar um 7% af öllum trúarstöðum Frakklands. Embættismenn þeirra hafa samband við sveitarfélögin og að lokum er íslömskum reglum komið á. Sambandið brást reiðilega við ásökunum um að tengjast erlendri stjórnmálastefnu. Múslímska sambandið sagði:
„Að rugla saman íslam og pólitískum íslamisma og öfgahyggju er ekki aðeins hættulegt, heldur gagnlaust fyrir lýðveldið sjálft. Að baki þessum tilefnislausu ásökunum er áætlun um að fordæma íslam og múslima.“
Innanríkisráðherrann Bruno Retailleau, leiðtogi íhaldsflokksins Les Républicains, varaði við því að íslamistar reyni að komast inn í opinberar stofnanir og setja allt franska samfélaginu undir sharía-lög. Sveitarstjórnarkosningar eru fyrirhugaðar í Frakklandi á næsta ári og Retailleau – sem hefur getið sér orðspor sem harðlínumaður – hefur sagt að hann hafi áhyggjur af möguleikanum á íslömskum framboðslistum.