Elon Musk, ávarpaði meðlimi Valkosts fyrir Þýskalands, AfD, á stórskjá í Halle í Þýskalandi í gær í beinni útsendingu fyrir framan þúsunda spennta flokksmenn AfD. Elon Musk lagði áherslu á að komandi kosningar „gætu ráðið úrslitum um örlög Evrópu og kannski örlög heimsins.“
Elon Musk lætur ekkert aftra sér frá því að taka þátt í stjórnmálaumræðunni í heiminum. Hann sagði í beinni útsendingu, þar sem hann ávarpaði þing AfD:
„Ég held að við eigum að berjast fyrir spennandi og bjartari framtíð þar sem fólk getur verið bjartsýnt á það sem gerist, þar sem maður vaknar og hlakkar til framtíðarinnar.“
„Og leiðin að bestu leiðinni til að tryggja að besta leiðin að framtíðinni verði góð, er að þú verður að berjast fyrir góðri framtíð á hverjum degi og það verður frábært. Við munum eiga mjög spennandi dásamlega framtíð. Þess vegna tel ég að þessar kosningar sem fram undan eru í Þýskalandi séu svo ótrúlega mikilvægar.“
„Ég held að þær geti ráðið úrslitum um örlög allrar Evrópu, kannski örlög alls heims. Þessar kosningar eru það þýðingarmiklar. Þess vegna er mjög mikilvægt að þú talir við vini þína og fjölskyldu og sannfærir þau um að íhuga að kjósa AfD.“
„Þetta verður eins og keðjuverkun, sannfærðu einn vin, talaðu við annan vin og spyrðu fólk hvort það vilji hafa áfram meira af síðustu tíu árum eða hvort það vilji eitthvað annað? Ég held að fólkið í Þýskalandi vilji breytingar.“