Greinilega óttast Volodymyr Zelenský að þegar athygli heimsins beinist að hættulegri uppsveiflu á Mið-Austurlöndum, þá verði erfiðara að afla fjár í stríðsreksturinn heima fyrir. Zelensky kemur núna með þá „snilldarhugmynd“ að vestrænu samstarfsríkin í Nató úthluti 0,25% af landsframleiðslu sinni til reksturs Úkraínustríðsins.
„Í tilkynningu sem skrifstofa hans birti á laugardag sagði Zelenský að Úkraína væri í viðræðum við Danmörku, Noreg, Þýskaland, Kanada, Bretland og Litháen um að hefja sameiginlega vopnaframleiðslu.
Úkraína er hluti af öryggismálum Evrópu og við viljum að 0,25% af landsframleiðslu viðkomandi samstarfsríkis verði úthlutað til varnarmálaiðnaðar okkar og innlendrar framleiðslu, sagði Zelenský.“
Úkraína hefur þegar tryggt 43 milljarða dollara 2025 fyrir stríðsreksturinn sem er um 40% af fjárþörf varnarmála að sögn Zelenskýs. Á Nató fundinum í Haag á þriðjudag mun spurningin um 5% fjárframlag Natóríkja af landsframleiðslu vera til umræðu.
Kannski lofar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Íslands 5% framlagi Íslands til Nató og tryggir vini sínum Volodymyr Zelenský jafnframt 0,25% af þjóðarframleiðslu Íslands til stríðsreksturs í Úkraínu. Hún virðist ekki þurfa að spyrja neinn á Íslandi um leyfi; stefna ríkisstjórnarinnar er að taka fyrst ákvarðanir í útlöndum og birta síðan tilkynningu eftir á til þings og þjóðar.