Mótmæli á Austurvelli á laugardaginn 26. september kl. 13.00

Hreyfingin Ísland þvert á flokka boðar til mótmæla gegn ríkisstjórninni laugardaginn 26. september kl 13.00 á Austurvelli.

Á mynd eru sýnd mótmælaspjöld gegn kílómetragjaldi sem er að sliga fólk, fremst á landsbyggðinni sem þarf að keyra langar vegalengdir. Reiði er einnig vegna þess að ríkisstjórnin klauf þjóðina með því að vekja upp umsóknarlík Jóhönnustjórnarinnar frá 2009. Íslendingar höfnuðu áframhaldandi aðildarviðræðum við ESB en ríkisstjórnin virðist ekki ætla að taka það nei alvarlega.

Þjóðólfur mun greina frá mótmælunum síðar.