Svíar ganga til kosninga á sunnudaginn kemur 13. september. Sjálfhelda er í pólitíkinni og virðist mjótt á munum að hvorug blokkinn, hvorki ráðandi hægri né vinstri blokkin fái meirihluta. Hart er því barist og nún kemur í ljós að moskur virkja múslimska kjósendur á sama tíma og áhrifavaldar reka kosningabaráttu gegn Svíþjóðardemókrötunum (SD) og ríkisstjórnarflokkunum. Stjórnmálafræðingur bendir á að þessi virkjun geti gagnast vinstriflokkum – sem þegar njóta mikils stuðnings meðal múslima.
Moskur víða í Svíþjóð reyna að fá fleiri múslima á kjörstað fyrir kosningarnar á sunnudag. Á sama tíma er á samfélagsmiðlum hvatt til þess að fólk kjósi hvorki Svíþjóðardemókratana né hina Tidö-flokkana, að því er SVT greinir frá.
Kosningafræðsla og kosningasendiherrar
Virkjunin fer fram á mörgum vígstöðvum. Moskan í Helsingborg dreifir myndböndum á samfélagsmiðlum og moskan í Uppsölum stendur fyrir kosningafræðslu. Íslamska sambandið rekur kosningaherferð í Rosengård en moskan í Gautaborg notar sérstaka kosningasendiherra í Hammarkullen í samstarfi við fræðslusamtökin Sensus.
Moskan í Gautaborg hefur auk þess útbúið sinn eigin kosningaáttavita. Þar er meðal annars spurt um hijab-höfuðslæður og trúarlega einkaskóla. Herferðunum er lýst sem óháðum stjórnmálaflokkum en stjórnmálafræðingurinn Magnus Hagevi segir að aukin kosningaþátttaka múslima geti gagnast vinstrinu.
„Stjórnmálaskoðanirnar hallast til vinstri. Jafnaðarmenn njóta mjög mikils stuðnings meðal sænskra múslima. Það er á bilinu 55–60 prósent samkvæmt þeim könnunum sem við höfum,“ segir hann.
Herferð gegn ríkisstjórnarflokkunum
Samhliða þessu dreifa múslimskir áhrifavaldar og aðrir reikningar skilaboðum gegn Tidö-flokkunum og sérstaklega Svíþjóðardemókrötunum.
Mohammad Fazlhashemi, prófessor við Uppsalaháskóla, segir að áhyggjur séu meðal múslima eftir fjögur ár þar sem SD hefur verið stuðningsflokkur ríkisstjórnarinnar.
Flokksritari SD, Mattias Bäckström Johansson, vísar þeirri mynd á bug og svarar skriflega:
„Það er augljóst að þeir sem hafa einhvers konar áhyggjur af þessu eru ranglega upplýstir um skoðanir okkar.“
„Höfum ekki séð þetta áður“
Virkjunin á sér stað á sama tíma og utankjörfundaratkvæðagreiðsla eykst verulega í hverfum þar sem hátt hlutfall íbúa er af erlendum uppruna. Arabíski miðillinn Alkompis sér einnig aukinn stjórnmálaáhuga meðal þeirra sem kjósa í fyrsta sinn og eru af erlendum uppruna.
„Við höfum ekki séð þetta með sama hætti í fyrri kosningum,“ segir Julia Agha, framkvæmdastjóri Alkompis.
