Montana gæti orðið fyrsta ríkið sem bannar mRNA bóluefni

Ríkið Montana áformar að banna mRNA bóluefni. Þingnefnd hefur samþykkt málið og repúblikanar leggja fram frumvarp um lög sem banna notkun mRNA bóluefna. Frumvarpið House Bill 371 er borið fram af þingmönnum Montanaþings þeim Greg Kmetz, Tracy Sharp og Lukas Schubert. Skv. frumvarpinu verður bannað að nota bóluefni sem þróuð eru með mRNA eða ríbónúkleinsýru.

Nýlega ákvað dómsmálanefnd Montana þings að senda frumvarpið til umræðu á þinginu samkvæmt NBC Montana. Dr. Christine Drivdahl-Smith, heimilislæknir í Miles City, sagði við nefndina fyrr í þessum mánuði:

„[mRNA bóluefni eru] skaðvænleg og banvænustu læknisfræðilegu efni sem nokkru sinni hafa verið notuð í sögu læknisfræðinnar“

Derek Oestreicher, yfirlögfræðingur Montana Family Foundation, sem vinnur að því að upplýsa foreldra um ákvarðanir tengdar heilsugæslu barna sagði við þingnefnd Montana:

„mRNA bóluefni eru enn á frumstigi, við skiljum enn ekki til fulls langtímaafleiðingar þess að sprauta tilbúnu erfðaefni inn í mannslíkamann. Flýtirinn við að koma þessum bóluefnum á markað án fullnægjandi langtímarannsókna hefur vakið miklar efasemdir mjög margra um visku læknisfræðilegra ákvarðana. Það á sérstaklega við um þá sem fundu sig neydda eða þvingaða til að taka bóluefnin vegna fyrirmæla, félagslegs þrýstings eða hættu um að missa starfið.“

Þótt frumvarpið myndi banna mRNA bóluefni „varðandi smitsjúkdóma“ þá eru undanþágur gerðar fyrir „genameðferðarefni sem notuð eru til að meðhöndla krabbamein eða erfðasjúkdóma.“

Frægasta mRNA bóluefnið var Covid-bóluefnið sem kom ekki í veg fyrir smit sjúkdómsins, þrátt fyrir loforð stóru lyfjafyrirtækjanna um að binda enda á faraldurinn.

Læknar eiga á hættu að missa starfsleyfið ef þeir sprauta mRNA í fólk

Samkvæmt frumvarpinu verður hver heilbrigðisstarfsmaður sektaður sem er staðinn að verki við að gefa einstaklingi genabyggt bóluefni. Sektin er 500 dollarar fyrir sérhvert brot og viðkomandi gæti misst lækningaleyfið.

Það er enn óljóst hvort frumvarpið hafi nægan stuðning til að verða samþykkt. Repúblikanar stjórna báðum deildum Montana-þingsins, þótt þeir hafi ekki yfirgnæfandi meirihluta. Ríkisstjóri Montana er repúblikaninn Greg Gianforte.

RRobert F. Kennedy, heilbrigðismálaráðherra Bandaríkjanna, er þekktur fyrir gagnrýni á mRNA tækninni en hefur sagt að menn séu frjálsir að taka þau bóluefni sem þeir vilja. Hins vegar hefur Kennedy lofað endurskoðun á aukaverkunum bóluefna til að hækka kröfurnar um að fá að nota mRNA tæknina.

Fara efst á síðu