Boris Johnson hvatti Úkraínumenn til áframhaldandi stríðs vorið 2022 þegar samningaviðræður við Rússa stóðu yfir. Síðar sama ár fékk einkafélag hans eina milljón punda frá stórum hluthafa í hergagnafyrirtæki. Árið eftir tók Johnson styrktaraðilann með sér á fundi í Úkraínu. Þessi tengsl vekja áleitnar spurningar um peninga, pólitísk áhrif og aðgang að ráðamönnum á stríðstímum. Ljóst er að Bretar eru virkir þátttakendur í stríðinu með afhendingu drónatækni og annarra hernaðargagna.
Greiðslan er skráð í opinberri hagsmunaskrá breska þingsins. Christopher Harborne greiddi eina milljón punda til félagsins The Office of Boris Johnson Ltd hinn 21. nóvember 2022, eftir að Johnson hafði látið af embætti forsætisráðherra.
Samkvæmt rannsókn Guardian frá október 2025 fylgdi Harborne honum síðan til Úkraínu í september 2023. Harborne var skráður sem ráðgjafi skrifstofu Johnsons á ráðstefnunni Yalta European Strategy í Kænugarði, þar sem saman komu ráðherrar, herforingjar, embættismenn og viðskiptamenn.
Hvatti til áframhaldandi stríðs meðan samið var um frið
Heimsókn Johnsons til Kænugarðs 9. apríl 2022 hefur lengi verið umdeild vegna áhrifa hennar á friðarviðræðurnar.
Í maí það ár greindi Ukrainska Pravda frá því, með vísan til heimildarmanna nærri Selenskí, að Johnson hefði komið með skilaboð um að frekar ætti að berjast við Pútín fremur en semja við hann. Davyd Arakhamía, formaður úkraínsku samninganefndarinnar, lýsti síðar afskiptunum þannig:
„Þegar við komum til baka frá Istanbúl kom Boris Johnson til Kænugarðs og sagði að við myndum alls ekki undirrita neitt með þeim og skyldum einfaldlega berjast áfram.“
Arakhamía nefndi jafnframt vantraust á Rússa og ófullnægjandi öryggistryggingar sem hindranir. Viðræður héldu áfram eftir heimsókn Johnsons, en þær skiluðu ekki friðarsamningi. Viðtalið við Arakhamía
Styrktaraðili með hagsmuni í vopnaiðnaði
Samkvæmt Guardian var Harborne stærsti hluthafi QinetiQ, með um 13 prósenta hlut. Fyrirtækið hefur meðal annars tengst afhendingu dróna og sprengjueyðingarvélmenna til Úkraínu.
Lekinn ferðaáætlunartexti sem blaðið skoðaði tilgreindi lokaðan fund í rannsóknar- og þróunarmiðstöð fyrir hertækni í ferðinni 2023. Ekki kom fram hvort Harborne sat þann fund. Hins vegar sýndu ljósmyndir hann með Johnson á fundi með borgarstjóra Lviv.
Af hverju var milljón punda styrktaraðilinn með í för? Hvaða ráðgjöf veitti hann? Hvaða fundi sat hann og voru viðskiptahagsmunir hans kynntir þeim sem tóku á móti sendinefndinni?
Ósvöruðum spurningum fjölgar
Guardian greindi einnig frá fjárhagsráðgjöf til Johnsons þar sem rætt var hvort fyrirhuguð greiðsla til félags hans ætti að teljast pólitískur styrkur eða hvort einfaldara væri að reikningsfæra félag styrktaraðilans fyrir þjónustu.
Það vekur frekari spurningu: Hvaða þjónusta kom þar til álita?
Lögmenn Harbornes sögðu styrkinn ætlaðan til að halda Johnson virkum í breskum stjórnmálum og neituðu að Harborne hefði vænst persónulegs ávinnings. Johnson brást við fyrirspurnum Guardian með því að saka blaðið um að vinna verk Pútíns.
Engin birt gögn tengja greiðsluna beint við afskipti Johnsons af friðarviðræðunum. En það svarar ekki spurningunni um hvað milljón punda stuðningurinn færði Harborne: Hvernig og hvers vegna fékk fjársterkur maður með hagsmuni í hergagnaiðnaði hlutverk ráðgjafa og aðgang að ráðamönnum í Úkraínu í fylgd fyrrverandi forsætisráðherra?
10:54
