„Maður gerir ekki málamiðlanir við hið illa. Sósíalismi er beinlínis illur. Þar var hugmyndinni fylgt til hins ýtrasta, skulum við segja, nú þegar það er í tísku um allan heim að lesa okkar mesta rithöfund, Borges, ekki satt?
Tökum þá hugmyndina, skulum við segja, og fylgjum henni til hins ýtrasta. Þegar sósíalismanum var beitt til hins ýtrasta brást hann efnahagslega, félagslega og menningarlega, og auk þess myrtu þeir 150 milljónir manna.
Ég hef ekkert, nákvæmlega ekkert, að sækja í svo óhugnanlega hugmyndafræði sem gengur aðeins upp, skulum við segja, á rannsóknarstofu.
Eða, skulum við segja, ekki einu sinni á rannsóknarstofu, heldur á blaði, ekki satt?
Hjá fólki, skulum við segja, sem þarf ekki að fara út og vinna fyrir sér.
Sem þarf ekki, skulum við segja, að takast á við það í raun og veru að reka fyrirtæki og koma framleiðslu á fót.
Nei, skulum við segja, ég á við að sósíalismi getur aðeins þrifist innan lokaðra veggja háskólasamfélagsins, því þar getur fólk komist af án þess að láta reyna á hugmyndirnar.“