Þýska lögreglan hefur leitað í meira en 170 fasteignum og yfirheyrt fjölda fólks í aðgerð til að berjast gegn svo kallaðri hatursorðræðu eða „hatursáróðri“ á netinu. Að sögn Apollo News hófst aðgerðin snemma miðvikudagsmorgun. Meðal annars var lagt hald á tölvur, snjallsíma og önnur rafræn samskiptatæki.
Þeir sem verið er að gera húsleit hjá eru sakaðir um að kynda undir hatur, móðga stjórnmálamenn og nota tákn hryðjuverkahópa eða samtaka sem ekki fylgja lögum. Aðgerð alríkislögreglunnar byggir á nýlega breyttri grein 188 í hegningarlögum til að vernda stjórnmálamenn gegn „móðgunum“ af hálfu kjósenda. Refsing fyrir slíkt athæfi varðar margra ára fangelsi.
Samkvæmt alríkislögreglunni BKA, sem hafði umsjón með aðgerðinni, þá tengist hún meira en 140 rannsóknum. BKA sagði einnig að um tveir þriðju hlutar af yfirlýsingum á Internet sem voru til rannsóknar kæmu frá „öfgahægri aðilum.“
Lögregluaðgerðin var sú tólfta sinnar tegundar. Samkvæmt BKA hefur glæpum af þessu tagi fjölgað á undanförnum árum. Að baki margra tilkynninga um hatursglæpi á netinu standa vinstri samtök sem fá ríkisstyrk, svo kallaðar NGO samtök (Non Governmental Organisation). Í fyrra voru skráðar yfir 10.700 slíkar kærur sem er fjörföldun miðað við árið 2021.
Stafrænir brennuvargar
Herbert Reul, innanríkisráðherra fjölmennasta sambandsríkis Þýskalands, Norðurrín-Vestfalíu, segir það mikilvægt að gerendurnir séu afhjúpaðir. Hann sagði:
„Stafrænir brennuvargar mega ekki fá að fela sig á bak við síma sína eða tölvur.“