Orðin í fyrirsögninni eru Donald Trumps Bandaríkjaforseta, þegar hann frétti um morðin á tveimur ungum starfsmönnum ísraelska sendiráðsins í Washington, Þau voru drepin af byssubrjálæðingi sem kallaði „Frelsum Palestínu“ þegar hann var handtekinn.
Starfsmenn sendiráðsins voru að yfirgefa samkomu ungra embættismanna á safni Gyðinga í Washington þegar morðinginn birtist allt í einu og hóf skotárás. Hin myrtu voru par sem ætluðu að trúlofast.
Morðinginn var kunningi lögreglunnar. Hann sást ganga fram og til baka fyrir utan safnið áður en hann hóf skotárásina. Á myndskeiðinu að neðan má heyra hann kalla „Frelsum Palestínu“ þegar hann er handtekinn.
תיעוד מעצר המחבל מוושינגטון, והעדויות: "נכנס למוזיאון בריצה והתחזה לעד ראייה"https://t.co/jmFzQKh1Fr pic.twitter.com/1eCbH5qF1F
— ynet עדכוני (@ynetalerts) May 22, 2025
Eftir skotárásina fór morðinginn inn í safnið og bað öryggisverði um að hringja á lögregluna. Þeir héldu að hann væri vitni og gáfu honum vatn að drekka og hlúðu að honum. En þegar lögreglan kom á staðinn viðurkenndi hann verknaðinn:
„Ég gerði þetta fyrir Gaza. Frelsum Palestínu!“
Núna verður öryggið eflt við öll ísraelsk sendiráð í heiminum. Ljóst er að öll mótmæli til stuðnings Hamas geta vakið brjálæðinga til illverka eins og þessa. Að neðan má sjá myndskeið með orðum Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels um ódæðið. Donald Trump var greinilega ákaflega hryggur, þegar hann skrifaði eftirfarandi skilaboð á Truth Social:
