Myndband af Giorgiu Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, hefur aftur vakið athygli á samfélagsmiðlum þar sem hún gagnrýnir harðlega leiðbeiningar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um „inngildandi samskipti“. Myndbandið er þó ekki nýtt. Ummælin féllu á CPAC-ráðstefnunni í Bandaríkjunum árið 2022, áður en Meloni varð forsætisráðherra.
Tilefni ummælanna var skjal framkvæmdastjórnar ESB, European Commission Guidelines for Inclusive Communication, sem hafði valdið miklu uppnámi nokkrum mánuðum áður.
Málið varð svo umdeilt að Helena Dalli, þáverandi jafnréttisfulltrúi ESB, dró skjalið til baka. Framkvæmdastjórnin staðfesti síðar skriflega að skjalið hefði verið innanhússleiðbeiningar fyrir starfsfólk og að það hefði verið afturkallað.
Jól, María og Jóhannes
Leiðbeiningarnar vöktu einkum athygli vegna tillagna um hvernig starfsmenn framkvæmdastjórnarinnar ættu að haga orðavali og framsetningu þannig að ekki væri gert ráð fyrir ákveðnum trúarlegum, menningarlegum eða kynbundnum bakgrunni fólks.
Í opinberum fyrirspurnum Evrópuþingmanna um skjalið voru meðal annars dregin fram þessi atriði:
- Ekki gera ráð fyrir að allir séu kristnir og nota því ekki alltaf „Christmas period“.
- Ekki nota eingöngu dæmigerð kristin nöfn eins og Maria og John í dæmum; meðal umdeildustu dæmanna var tillaga um Malika og Julio í stað Maria og John.
- Forðast í ákveðnu samhengi orð eins og wife/husband og mother/father.
- Nota kynhlutlausara orðalag.
- Gæta að kynþátta-, trúar- og menningarlegum fjölbreytileika í ljósmyndum og öðru kynningarefni.
Í öðrum dæmum var gagnrýnt að leiðbeiningarnar mæltu með kynhlutlausum ávörpum og orðalagi. Málið varð meira að segja sérstakt umræðuefni á Evrópuþinginu í desember 2021.
Framkvæmdastjórnin hafnaði hins vegar þeirri túlkun að verið væri að banna jól eða kristin mannanöfn. Í opinberu svari Dalli sagði að kristin nöfn og jólahald væru hluti af ríkri evrópskri arfleifð og að markmið skjalsins hefði verið að gera starfsfólk meðvitaðra um fjölbreytileika menningar og trúarbragða meðal Evrópubúa. Skjalið hefði síðan verið dregið til baka.
Meloni: „Jesús, María og Jóhannes“
Þetta var málið sem Meloni tók fyrir í CPAC-ræðu sinni árið 2022. Hún setti það í samhengi við það sem hún taldi tilraunir evrópskra stofnana til að veikja kristna sjálfsmynd Evrópu og vísaði sérstaklega til jóla og kristinna nafna á borð við Jesú, Maríu og Jóhannes.
Það er þó mikilvægt að greina pólitíska túlkun Meloni frá nákvæmu innihaldi skjalsins. Ekki var um lagalegt bann við þessum orðum eða nöfnum að ræða heldur innri samskiptaleiðbeiningar framkvæmdastjórnarinnar.
Uppnámið varð engu að síður það mikið að leiðbeiningarnar lifðu ekki af.
En hvarf stefnan?
Þjóðólfur hefur kannað hvað gerðist í framhaldinu og hvort sambærileg stefna hafi horfið úr stofnanakerfi ESB þegar skjalið var afturkallað.
Svarið er nei.
Ekki finnast hins vegar gögn um að framkvæmdastjórnin hafi endurútgefið umdeildustu fyrirmælin um „Christmas“, Maria og John í nýju skjali.
Áherslan á „inclusive communication“ – inngildandi samskipti – hefur aftur á móti haldið áfram innan stofnana ESB.
Skýrt dæmi um það er Evrópska jafnréttisstofnunin EIGE, stofnun Evrópusambandsins. Hún hefur nú gefið út nýja handbók sem ber heitið Words Matter: Supporting Gender Equality Through Language and Communication.
Þar segir að tungumál og samskipti gegni lykilhlutverki við að móta viðhorf, hegðun og samfélagsleg viðmið. Markmiðið sé meðal annars að stuðla að kynjajafnrétti með meðvitaðri málnotkun. Leiðbeiningarnar ná einnig til þátta á borð við aldur, þjóðerni, bakgrunn innflytjenda, fötlun og kynhneigð.
„Words Matter“
Nýju leiðbeiningarnar ná ekki aðeins til textagerðar heldur einnig samfélagsmiðla, myndbanda, viðburða og myndmáls.
EIGE ráðleggur til dæmis þeim sem útbúa efni fyrir samfélagsmiðla að athuga hvort myndir sýni fjölbreytileika kynja, hvort ólík sjónarmið og kynvitundir komi fram og hvort menningarlegur fjölbreytileiki sé virtur.
Í leiðbeiningum um myndbönd er jafnframt hvatt til þess að hugað sé að „broader understanding of gender (including non-binary)“ og að fjölbreytileiki sé tryggður meðal þeirra sem koma að framleiðslu efnisins.
Málfarsleiðbeiningarnar gefa einnig áþreifanleg dæmi. Í stað „Ambassadors and their wives“ er lagt til „Ambassadors and their spouses“. „Ladies and gentlemen“ er meðal orðalags sem parað er við kynhlutlausa valkostinn „Welcome everyone“. Umdeildustu atriðin hurfu – hugmyndafræðin ekki
Niðurstaðan er því tvíþætt.
Umdeilda skjalinu sem Meloni talaði um var raunverulega kippt úr umferð. Þjóðólfur finnur heldur engar heimildir fyrir því að framkvæmdastjórnin hafi síðar endurvakið tillögurnar um að forðast sérstaklega orðið „Christmas“ eða nöfnin Maria og John.
En hugmyndin sem lá að baki skjalinu – að stofnanir Evrópusambandsins eigi meðvitað að móta orðaval, myndmál og opinber samskipti með tilliti til inngildingar, kyns og fjölbreytileika – hvarf ekki.
Hún er enn sýnileg í opinberum leiðbeiningum stofnana Evrópusambandsins.
Gamla skjalið sem vakti reiði Meloni var því dregið til baka. Stefnan um inngildandi málfar og samskipti hélt hins vegar áfram að þróast – en án þeirra tilteknu fyrirmæla um jól og kristin nöfn sem ollu mesta uppnáminu árið 2021.
