Medvedev varar við heimsstyrjöld

Dmitrí Medvedev, fyrrverandi forseti Rússlands og nú varaformaður rússneska öryggisráðsins, varar við því að stríðið í Úkraínu geti þróast yfir í alþjóðleg átök verði ekki fundin varanleg lausn á deilunni.

Medvedev lætur þessi orð falla í viðtali við rússneska viðskiptablaðið Vedomosti, að því er Tass greinir frá.

Hann segir Rússa vilja að stríðinu ljúki eins fljótt og auðið er, en leggur jafnframt áherslu á að það verði, frá sjónarhóli Moskvu, að gerast á skilmálum Rússlands. Að öðrum kosti sé hætta á að átökin blossi upp að nýju og geti að lokum breiðst út fyrir landamæri Úkraínu.

„Er hætta á að þetta þróist yfir í alþjóðleg átök? Já, því miður,“ segir Medvedev.

Hann heldur því fram að verði átökunum ekki lokið á skilmálum Rússlands muni þau líklega taka sig upp aftur með reglulegu millibili.

Medvedev sakar jafnframt ríki sem hann lýsir sem óvinveitt Rússlandi um að vilja grafa undan undirstöðum rússneska ríkisins og reyna að kljúfa landið þegar tækifæri gefst.

Ummælin eru enn ein viðvörun háttsetts rússnesks ráðamanns um að átökin í Úkraínu geti fengið mun víðtækari afleiðingar verði ekki samið um endalok stríðsins.