Markmið Samfylkingarinnar: Koma á sósíalisma á Íslandi

Íslendingar ættu að spyrja sig hvað lýðræðislegir fulltrúar þeirra eru að gera erlendis. Bæði í eigin persónu á staðnum eða á stórskjám. Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, var aðalnúmerið á öðrum degi þings evrópskra sósíalista sem safnast í flokknum PES á ESB-þinginu: Party of European Socialists. Flokkur evrópskra sósíalista hélt þing 18. október 2025 og dag tvö voru sýnd ávörp leiðtoga sem ekki voru á þinginu. Kristrún fór mikinn og skýrði stefnu Samfylkingarinnar í ræðu, sjá hér að neðan. Hér er slóð á youtube myndband og er Kristín þar strax eftir fimmtu mínútu.

Það sem vekur athygli Þjóðólfs er að hún talar um „þjóðrækna jafnaðarstefnu gegn öfgahægriöflum sem hóta að grafa undan þjóðum okkar og sameiginlegum gildum.” Sem kunnugt er notuðu nazistar hugtakið „þjóðrækinn sósíalismi” svo greinilega er eitthvað verulega að hjá Samfylkingunni í þessum hugmyndafræðilega samanburði.

Miðað við aðfarir ríkisstjórnarinnar á landsmenn, þá rímar það vel við skilgreiningu ríkisstjórnarinnar að höfuðandstæðingurinn sé Sjálfstæðis- og Miðflokkur og framsæknir frumkvöðlar, þá aðallega í sjávarútvegi. Með svínsköttum er verið að eyðileggja grunn framsækinna frumkvöðla og einn besta sjávarútveg í heimi. Með þessu er verið að „hrista upp í kerfinu” eins og Kristrún lýti yfir að sósíalistar í Evrópu eiga að gera, þegar þeir komast til valda.

Kristrún og aðfarir ríkisstjórnarinnar að vinnandi fólki á Íslandi undir bábiljum jafnaðarmennskunnar er gerð í samráði og sem verkefni í nýrri miðstöð sósíalista á heimsmælikvarða. Þar eru ákvarðanir teknar um framtíð ríkja með sósíalískum ríkisstjórnum – einnig á Íslandi. Enda færir Kristrún Frostadóttir Flokki evrópskra sósíalista bestu þakkir fyrir að „leiða okkur saman.”

Kristrún hefur verið kynnt sem nýr alþjóðlegur leiðtogi sósíalista og tekur þegar þátt í ríkismyndunarverkefni Evrópusambandsins. Hjarta hennar er sovétmegin við íslenska landhelgi og hún hefur alfarið svikið þjóð sína.

ESB-kosningunum á Íslandi er stjórnað frá Brussel með starfsmönnum glóbaliztanna í fimmtu herdeildinni á Íslandi, Samfylkingunni og Viðreisn sem mynda ríkisstjórn sem búin er að traðka á gildandi stjórnlögum landsins. Ef útkoman verður já þann 29. ágúst mun vegferð sósíalistanna halda áfram að leggja Ísland undir sig og hina nýju miðstjórn hins nýja sambandsríkis í Brussel.

Já þann 29. ágúst þýðir já við sósíalisma á Íslandi.

Ræða Kristrúnar hér að neðan og hljóðbútur þar fyrir neðan:

„Þingfulltrúar, félagar og vinir.

Ég er með ykkur í anda í dag og stend með ykkur alla leið í sameiginlegu verkefni okkar á þessum örlagaríku tímum: að taka höndum saman þvert á landamæri og hrinda af stað nýrri, alþjóðlegri framsókn í stjórnmálum.

Aftur að grunnatriðunum — að fólkinu sjálfu. Með þjóðrækna jafnaðarstefnu að leiðarljósi gegn öfgahægriöflum sem hóta að grafa undan þjóðum okkar og sameiginlegum gildum.

Við höfum gert þetta áður og við munum gera það aftur: með því að ná sambandi við kjósendur, vinna kosningar og knýja fram raunverulegar breytingar fyrir vinnandi fólk. Með því að hrista upp í kerfinu þegar við komumst til valda og láta stjórnvöld vinna í þágu fólksins, um leið og við varðveitum stolt og öryggiskennd almennings.

Þingfulltrúar, þetta er sameiginlegt verkefni okkar á þessari stundu. Endurheimtum miðjuna í alþjóðastjórnmálum undir merkjum jafnaðarstefnunnar.

Alþjóðleg hreyfing okkar hefur að undanförnu unnið nokkra afar hvetjandi sigra. Ég sótti Global Progress Action-ráðstefnuna í Lundúnum í september, rétt eftir sigur Verkamannaflokksins í Noregi. Þar tók ég þátt í umræðum með framsæknum leiðtogum Bretlands, Ástralíu og Kanada, sem öll hafa unnið kosningar eða endurkjör á síðastliðnu ári.

Við höfum sýnt að þegar við stöndum skipulega að verki getum við sigrað. Á Íslandi leiða jafnaðarmenn nú ríkisstjórnina. Eftir ellefu löng ár utan ríkisstjórnar komumst við aftur til valda með því að vera heiðarleg við okkur sjálf og kjósendur.

Við snerum aftur að grunngildum okkar, lögðum áherslu á árangur og endurnýjuðum tengslin við fólkið. Við áttum raunveruleg samtöl um land allt. Við prédikuðum ekki okkar eigin snjöllu stefnumál, heldur hlustuðum af athygli — til þess að læra og rækja grundvallarsiðferðilega skyldu okkar sem jafnaðarmenn: að vinna kosningar og knýja fram raunverulegar breytingar fyrir vinnandi fólk.

Bestu þakkir til Flokks evrópskra sósíalista fyrir að leiða okkur saman. Ég óska hollenska Verkamannaflokknum og Frans Timmermans alls hins besta í komandi kosningum. Við kunnum að meta forystu ykkar í Evrópu og vonum að þú munir brátt þjóna landi þínu í nýju hlutverki og í nýrri ríkisstjórn Hollands.

Þingfulltrúar, hrindum af stað nýrri framsókn frjálslyndra og félagshyggjusinna í alþjóðastjórnmálum.

Es hora — tíminn er kominn.”