Nató er öflugra en Rómaveldi og heimsveldi Napóleons. Það sagði Mark Rutte, aðalritari hernaðarbandalagsins, á blaðamannafundi í gær, þegar hann bar saman Nató við þessi tvö sögulegu heimsveldi.
Júlíus Cesar, Napóleon Bónaparte og núna Mark Rutte. Rutte vill greinilega komast í sögubækurnar sem meiri herforingi en bæði Cesar og Napóleon.
Frjálslyndi stjórnmálamaðurinn lítur á sjálfan sig sem leiðtoga öflugasta hernaðarveldis heimssögunnar. Hann lét það ljós skína á alla á blaðamannafundi í Brussel í gær, þegar hann svaraði tyrkneskum blaðamanni (sjá rumble að neðan):
„Nató er öflugasta varnarbandalag heimssögunnar! Það er jafnvel öflugra en Rómaveldi og öflugra en veldi Napóleons. Við erum öflugasta varnarbandalag heimssögunnar.“
Vopnabúnaður
Varnarmálaráðherrar hernaðarbandalagsins koma saman til leiðtogafundar í höfuðborg ESB. Ríkjandi þema er áframhaldandi vopnakapphlaup gegn Rússlandi. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur áður sagt að aðildarríki hernaðarbandalagsins þurfi að eyða fimm prósentum af vergri landsframleiðslu í hernaðarmál sín. Rutte er sammála þeim metnaði. Hann sagði:
„Hvort við teljum okkur örugg ef við höldum okkur við tveggja prósenta markmiðið? Gleymið því! Mögulega næstu þrjú til fimm árin, en eftir það munum við lenda í miklum vanda. Bandaríkin búast réttilega við að við fjárfestum miklu meira í okkar eigin vörnum.“
Fyrir sum ríki Nató þýðir nýja fimm prósenta markmiðið margfalt meiri fjárveitingar til hernaðarmála en áður.
Trump á leiðtogafund
Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, mætti ekki á fund hins svo kallaða Ramstein-hóps, sem samhæfir stuðning við Úkraínu í gær. Hann er hins vegar í Brussel í dag.
Stjórn Bandaríkjanna dregur sig í auknum mæli frá Ramstein-hópnum sem eru 32 ríki Nató ásamt 25 öðrum ríkjum og ESB sem styðja Úkraínu. Bandaríkin hafa falið Bretlandi og Þýskalandi ábyrgð á mánaðarlegum fundum hópsins. Í síðasta mánuði var Hegseth með í símtali með mynd en í gær átti Matthew Whitaker, Nató-fulltrúi Bandaríkjanna, að vera á fundinum að sögn Politico. Kingsley Wilson, blaðafulltrúi Pentagon, segir um fjarveru Hegseth:
„Bandaríkin einbeita sér að því að binda enda á stríðið í Úkraínu eins fljótt og auðið er og á kjörum sem munu tryggja varanlegan frið.“
Í lok júní verður haldinn fundur í Haag með leiðtogum Nató og ESB. Donald Trump hefur tilkynnt að hann muni sækja þann fund. Ekki er nákvæmlega vitað, hvað verður rætt á fundinum en sumir óttast að Bandaríkin ætli að draga sig úr hernaðarbandalagi Nató.