Marco Rubio utanríkisráðherra flytur magnaða ræðu í Grikklandi, hafnar alþjóðahyggjunni og hvetur til baráttu gegn hnignun Vesturlanda

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, flutti ræðu í Aþenu á miðvikudag. Í magnaðri ræðu hvatti hann til baráttu gegn „hnignun Vesturlanda“ og hafnaði opnum landamærum og alþjóðahyggju/glóbalizma. Hann flutti ræðuna á Pnyx-hæðinni neðan við Akrópólis, þar sem lýðræðislegt þjóðþing Aþenu kom saman í fornöld.

Í ræðunni tengdi hann forngrískar hugmyndir um hetjuskap, heiður og skyldurækni við utanríkisstefnu undir formerkjunum „Bandaríkin í fyrsta sæti“ og hvatti til endurnýjunar vestrænna gilda.

„Þjóðarhyggja varð að skammaryrði,“ sagði Rubio. „Þannig að við rifum niður minnisvarða okkar, fordæmdum eigin sögu og kenndum börnunum okkar á allt of mörgum stöðum að skammast sín fyrir löndin sem þau myndu erfa. Á meðan opnuðum við landamæri okkar, fluttum iðnaðinn úr landi og létum heri okkar veslast upp og grotna niður.“

Hann hélt áfram: „Í dag stöndum við á krossgötum, því næsti áratugur og ákvarðanirnar sem við tökum munu móta sögu næstu aldar. Sú leið sem við veljum mun ráða því hvort Vesturlönd halda forystu sinni í heiminum eða sætta sig við framtíð sem einkennist af veiklun, undirgefni og hnignun.“

„Annaðhvort kjósum við að grípa til aðgerða núna eða glötum möguleikanum á að grípa yfirhöfuð til aðgerða. Undir forystu Trumps forseta hafa Bandaríkin tekið sína ákvörðun.“

„Við verðum að endurreisa stofnanir okkar og bandalög til að mæta þessum ógnum í sameiningu – með þeim skilningi að tilgangur þeirra sé ekki að afnema fullveldi ríkjanna sem að þeim standa, heldur að verja þau. Og að þjóðir þurfi ekki að afsala sér eigin sérkennum til að viðurkenna sameiginlega hagsmuni sína.“

„Við trúum því að Evrópa geti vaknað af löngum dvala sínum – og glædd að nýju eldinn sem hér var kveiktur fyrir árþúsundum.“