Málfrelsið í hættu – Nýsiðmenning kirkjunnar og kyn númer 722

Í þriðja þætti Ísafoldar tóku þau Íris Erlingsdóttir og Gústaf Skúlason viðtal við Pál Vilhjálmsson blaðamann en Samtökin 78 hafa kært hann fyrir hatursorðræðu vegna þess að hann er ekki sammála þeim um kennsluefni í kynfræðslu fyrir börn í leik- og grunnskólum landsins. Meðal annars gengur fræðslan út á að kornungum börnum er kennt að fitla við sig sjálf, setja fingur í endaop líkamans m.m. Er um mjög ógeðfellda innrás í einkalíf ókynþroska barna að ræða og meðal annars útskýrði Páll Vilhjálmsson hugtakið barnagirnd sem slík „kynfræðsla“ getur æst upp hjá óvönduðum einstaklingum sem hæglega gæti þróast upp í eitthvað meira og verra eins og barnaníð.

Enginn fjölmiðill var viðstaddur málsmeðferðina í héraðsdómi Reykjavíkur 12. júní s.l. þar sem sjálft málfrelsið er í raun sakborningur. Er það til marks um þá samtryggingu sem ofsóknir Samtakanna 78 njóta með þöggun þeirra sem ættu sjálfir að láta sig málfrelsið varða mest af öllum.

Páll Vilhjálmsson hóf mál sitt á því að gera grein fyrir aðdraganda málsins en hann skrifaði í bloggi fyrir tveimur árum:

„Í grunnskólum Reykjavíkur er BDSM-kynlífi haldið að börnum. BDSM stendur fyrir drottnun, undirgefni, kvalarlosta og píningarnautn. Samtökin 78 reka BDSM-deild. En það eru einmitt Samtökin 78 sem útvega kennsluefni í kyn- og kynlífsfræðslu grunnskóla Reykjavíkur og sjá um þjálfun og kennslu.“ 

Slíkt klámfengið efni á ekkert erindi í kennslu lítilla barna að mati Páls Vilhjálmssonar, og eru þeir margir foreldrarnir sem eru honum sammála, þótt allir taki ekki blað frá munni. Páll segir:

„Ég er að bera hönd fyrir höfuð barna.

Dómur fellur í júlí. Íris benti á að mjög væri verið að þrengja að málfrelsinu:

„Ef einhver segir eitthvað sem móðgar einhvern hjá Samtökunum 78, þá er viðkomandi kærður, sem er náttúrulega fyrir neðan allar hellur.

Barnagirnd og barnaníð

Páll bendir á að viðkvæm atriði málsins varða hugtökin barnagirnd og barnaníð:

„Hluti af boðskapnum snertir þá sem haldnir eru barnagirnd, það er að segja þá sem fá örvun af nánu samlífi við börn sem við köllum hreinlega barnaníð, því barnagirnd sem hrint er í framkvæmd er barnaníð.

Páll segir margt af því efni sem Samtökin 78 kynna hérlendis sé þýtt efni erlendis frá sem sé gert undir formerkjum kynfræðslu. Hann bendir á að meðal annars eigi fullorðnir að ræða við smábörn um rómantískar tilfinningar:

„Barn 4-5 ára upp í 7, 8, 9, 10 ára og rúmlega það hefur ekki hugmynd um hvað átt er við. Þetta á ekkert heima þarna, þetta er eitthvað sem gerist á heimilinu ef foreldrar vilja ræða við börn um þessa hluti. En að fullorðnir tali við börn um rómantískar tilfinningar ætti að kveikja einhver ljós á mælaborðinu hjá fólki. Já, bíddu við erum við komin inn á brautir sem við ættum kannski að íhuga hvort við ættum ekki að fara af.

Páll vísar til þess efnis sem verið er að taka upp við börnin til dæmis er talað um að þreifa á sér kynfærin, fara inn í afturendann með fingurinn og taka myndir af sér. Slíkt á alls ekki heima í kennslubókum í grunnskólum. Hann segir efnisnálgun löðrandi í barnagirnd. Til dæmis er börnum innan við fermingu kennt í viku sex í Reykjavík að baka brauð sem eru formuð eins og kynfæri karla og kvenna:

„Hvaða skilaboð er eiginlega verið að senda börnum? Ég get ekki séð að þetta sé í einu eða neinu formi kynfræðsla. Það er meira verið að lækka þröskuldinn fyrir fullorðna að tala og ræða við börn um kynlíf. Og þá er tímaspurning hvenær þetta hættir að vera umræða og hvenær þetta verður eitthvað meira. Það er augljóst að þeir sem laðast að svona löguðu eru náttúrulega ekki eins og fólk er flest.

Páll Vilhjálmsson leggur áherslu á að hann sé engan vegin að halda því fram að öll Samtökin 78 eða þeir einstaklingar sem þar eru séu með slíkar hneigðir en varar við að það efni sem frá samtökunum kemur hentar ekki börnum.

Fjölmiðlar landsins styðja hatursofsóknir Samtakanna 78

Íris Erlingsdóttir segir ótrúlegt ástand hafa skapast, þegar foreldrar barna þora varla að standa á sínu af ótta við ofsóknir og atvinnumissi:

„Það er svo merkilegt við Ísland, hversu auðvelt það er að troða svona rugli inn á fólk og það virðist sem að margir Íslendingar eigi svo erfitt að mynda sér sjálfstæða skoðun um hlutina. Fjölmiðlarnir standa líka allir sem einn að baki Samtökunum 78 og styðja allt þetta trans rugl. Ég segi trans rugl, það er ekki til neitt sem heitir trans. Ekki frekar en að það er til köttur sem er grænmetisæta. Við erum öll bara konur og karlar, og það eru bara til þrjár kynhneigðir ( gagn- sam og tvíkynhneigð). Punktur.

Íris bendir á að Samtökin 78 njóti tugi, hundruð milljóna króna styrkveitinga frá ríkinu:

„Samtökunum 78 hefur verið gefið þetta ótrúlega vald af ríkinu, að ef einhver segir eitthvað, ef einhver kemur með gagnrýni, – það þarf ekki einu sinni að vera gagnrýni – ef maður segir bara eitthvað sem fólk innan Samtakanna 78 eða Trans Íslands tekur sem móðgun, þá ert þú bara sakaður um hatursorðræðu og já, upplýsingaóreiðu! Fólk verður að láta sér vaxa bakbein og fara að segja: Nei! Nú er komið nóg!

Transbiskup og kyn númer 722

Talið berst að Þjóðkirkjunni og biskupi Íslands sem fer fyrir umbyltingu kirkjunnar sem líkja má við siðaskipti. Páll Vilhjálmsson vísar í nýtt viðtal við séra Geir Waage í Mbl. sem ræðir um vildarhyggju. Ég vil sjónarmið ráða för. Sagt er að Guð sé andlegur og því hvorki karl né kona en kirkjan vinnur nú að því að kvengera ímynd Guðs eins og biskupinn lýsti í morgunútvarpi RÚV.

Páll segir að það hefði verið auðveldara fyrir kirkjuna að opna faðminn og segja að hún samþykki alla eins og þeir eru í stað þess að fara með kirkjuna út í trans vegferðina:

„Það er ekkert í starfsemi kirkjunnar sem kallar á að kirkjan taki einhverja afstöðu, þótt einhverjir einstaklingar eða lítill hópur segi að kynin séu þrjú, fimmtán eða sautján. Fólk má skilgreina sig alveg eins og það vill. Ég gæti skilgreint mig sem hross og það væri bara mitt mál. En að þjóðkirkjan vaði inn í þetta og segi að kynin séu mörg…..

„Svo er annað í þessu: Um leið og þú segir að kynin eru fleiri en tvö, þá þorir enginn að spyrja: Hversu mörg þá? Því ef við myndum segja 721, þá myndi óðara einhver koma og segja: Nei, nei. Þetta er ekki nógu gott. Ég er af kyni 722!

Smelltu á spilarann hér að neðan til að hlusta á umræðuna:

Fara efst á síðu