Nýtt viðtal við Jón Magnússon hæstaréttarlögmann í aðdragenda ESB-kosninganna. Sú ótrúlega vegferð sem ríkisstjórnin hefur dregið þjóðina í klýfur þjóðina í tvær fylkingar með og gegn Evrópusambandinu. Maður hefði haldið að eftir fyrri misheppnaðan umsóknarleiðangur, þá væri málið útkljáð en svo er ekki. Sýnir það klæki sambandsins og já-sinna innanlands, fremst í Stjórnarráðinu, að verið er að blekkja þjóðina með því að reyna að telja henni trú um að já sé ekki aðildarumsókn að Evrópusambandinu heldur aðeins könnun á reglum sambandsins.

Sú afstaða er í skærri mótsögn við stjórnskipunarlög Evrópusambandsins sjálfs, Lissabonsamninginn. Verið er að villa um fyrir landsmönnum að óhætt sé að kjósa já, því engar skuldbindingar fylgi.
Það er rangt. Ef já sigrar tekur við aðlögunartímabil sem endar með aðildarsamningi viðkomandi ríkis við Evrópusambandið. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er ekki einungis að endurtaka mistök forvera sínns, ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur, heldur bætir hún um með brögðum og ósannindum. Núna er farið fram á óskorað umboð þjóðarinnar til ríkisstjórnarinnar að skrifa undir óútfyllta ávísum sem verður fyllt út af erlendu ríkjasambandi með framkvæmdastjórn sem stendur utan við lýðræðið.
Það er leið til glötunar fyrir lýðveldið Ísland.
Fréttin verður uppfærð síðar í dag.
Smelltu á spilarann hér að neðan til að hlusta á þáttinn:
