Patty McMurray hjá Gateway Pundit segir að mikilvægasta rannsóknarblaðamennskuverkefni sem hún hefur unnið að á þeim 15 árum sem hún hefur starfað sem fréttamaður séu rannsóknir um kosningasvindl í Detroit sem miðillinn hefur sett í gang varðandi forsetakosningarnar 2020. Hún þakkar öllu samstarfsfólki og sjálfboðaliðum sem hafa lagt hönd á plóginn, sér í lagi Phani Mantravadi fyrir þolinmæði og leiðsagnar í öllum tæknilegum þáttum verkefnisins sem hlóð upp og flokkaði nærri eina milljón skjala á vefsíðu sinni, Check My Vote, þannig að yfir 100 vel þjálfaðir sjálfboðaliðar gátu vandlega skráð upplýsingar úr hverju einasta umslagi í gagnagrunn. Þannig varð til varanleg skrá yfir hvert umslag sem síðan var tengt við skráðan kjósanda. Mynd af umslaginu var síðan sett hlið við hlið við kjörskrá viðkomandi og kosningasögu hans samkvæmt kjörskrám Detroit frá nóvember og desember 2020.
Á aðeins níu mánuðum tókst þeim að byggja upp öflugt rannsóknarteymi sem samanstendur eingöngu af sjálfboðaliðum. Þetta greinda, metnaðarfulla og duglega fólk víðs vegar að úr Bandaríkjunum hefur fórnað tíma með fjölskyldu sinni, fríum, hátíðlegum viðburðum og einkatíma sínum til að vinna að þessu gríðarstóra verkefni og gera það að veruleika á þann hátt sem okkur gat aðeins dreymt um.
Allt hófst með textaskilaboðum frá Yehuda Miller

Í september 2025 fékk Patty McMurray textaskilaboð frá Yehuda Miller þar sem hann var staddur í Detroit. Hana grunaði ekki að þegar þau hittust myndi Yehuda Miller mæta akandi á leigðum U-Haul-flutningabíl sem var fullur af nærri einni milljón afrita af umsóknum um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar, umslögum fyrir atkvæði utan kjörfundar, atkvæðaseðlum utan kjörfundar og á kjörstað, kjörbókum, talningarstrimlum frá kjördeildum og ýmsum öðrum gögnum úr kosningunum í Detroit árið 2020. Yehuda hafði ekki aðeins undir höndum pappírseintök þessara gagna heldur einnig rafræn afrit af skönnuðum skjölum. Eina markmið hans var að tryggja að allt það efni sem hann hafði lagt svo mikla vinnu í að afla yrði gert opinbert. Þau voru bæði heilshugar sammála að ávallt greina almenningi fyrst frá niðurstöðum sínum áður en þær yrðu afhent réttum yfirvöldum.
Yehuda lagði fram beiðni samkvæmt upplýsingalögum (FOIA) til borgarinnar Detroit og Wayne-sýslu um afhendingu allra kjörgagna frá kosningunum í nóvember 2020 áður en lögbundinn frestur til að eyða þeim rann út. Þegar fyrstu beiðni hans var – eins og við var að búast – hafnað, höfðaði hann mál á grundvelli FOIA-laganna og vann það. Í kjölfarið voru borgin Detroit og Wayne-sýsla neydd til að verða við kröfunni og afhenda gögnin.

Kröfur um umslög fyrir atkvæði greidd utan kjörfundar
Samkvæmt kosningalögum Michigan árið 2020 varð hverju atkvæði sem greitt var utan kjörfundar að fylgja umslag fyrir atkvæðið með undirskrift kjósandans til staðfestingar.
MCL 168.764a (Leiðbeiningar fyrir kjósendur utan kjörfundar):
- 4: „Settu atkvæðaseðilinn eða atkvæðaseðlana í umslagið og lokaðu því vandlega.“
- 5: „Skrifaðu undir og dagsettu umslagið á þar til ætluðum stað. Undirskrift þín verður að vera á umslaginu, annars verður atkvæðið ekki talið með.“
Auk undirskriftar kjósandans og dagsetningarinnar sem hann undirritaði á umslaginu, þá bar umslagið opinberan dag- og tímastimpil frá skrifstofu kjörstjóra sem staðfesti hvenær það barst. Að auki skráði borgin Detroit (í sumum tilvikum) númer kjördeildar, númer talningarnefndar fyrir utankjörfundaratkvæði (þar sem atkvæðið var sent til úrvinnslu þegar það barst í TCF Center og var úthlutað viðeigandi talningarnefnd eða AVCB) og númer atkvæðaseðilsins.
Einkvæma númerið á atkvæðaseðlinum inni í umslaginu verður að samsvara númerinu sem skráð er utan á umslagið til þess að atkvæðið teljist gilt.
Ef ekkert umslag er til staðar er hvorki til undirskrift né númer atkvæðaseðils til samanburðar. Með öðrum orðum er þá hvorki hægt að framkvæma staðfestingu né tryggja órofa vörslukeðju kjörgagnanna.

Það sem uppgötvaðist
Vinna við yfirferð á umslögum fyrir atkvæði greidd utan kjörfundar í Detroit hófst í desember 2025 og lauk loks 9. júlí 2026. Eftir að upplýsingar úr hverju umslagi höfðu verið skráðar var hvert nafn og heimilisfang á umslaginu parað við skráðan kjósanda samkvæmt kjörskrá (Qualified Voter File, QVF) frá annaðhvort nóvember eða desember 2020. Hvert umslag var síðan yfirfarið tvisvar til fjórum sinnum til að tryggja nákvæmni. Þegar mynd af umslaginu hafði verið tengd við viðkomandi skráðan kjósanda í QVF birtist hún við hlið samsvarandi kjörskrárupplýsinga og kosningasögu hans á vefsíðunni Check My Vote.
Upprunalega voru umslögin í algjörri óreiðu. Þau voru ekki í réttri röð, sum á hvolfi og önnur á hlið. Phani Mantravadi flokkaði og skipulagði hvert einasta umslag þannig að rannsakendur gætu farið yfir þau í réttri röð eftir AVCB-talningarnefndum. Þótt borgin Detroit hefði birt opinbera skýrslu þar sem fram kom að 174.384 atkvæði utan kjörfundar hefðu verið talin með í lokaniðurstöðu borgarinnar, sem nam alls 250.219 atkvæðum, fékk Yehuda Miller aðeins afhent 155.487 umslög fyrir utankjörfundaratkvæði samkvæmt samkomulagi um afhendingu gagna á grundvelli FOIA.
Strax í upphafi rannsóknarinnar kom í ljós sláandi misræmi á milli fjölda utankjörfundaratkvæða og þeirra umslaga sem lög samkvæmt áttu að fylgja þeim. En eftir að hafa yfirfarið gögnin, tvíathugað þau og síðan þríathugað upplýsingar á hverju einasta umslagi og borið þær saman við skráða kjósendur í kjörskrá, tókst að sanna – með gögnum sem borgin Detroit lagði sjálf fram – að hvorki meira né minna en 26.901 atkvæði greidd utan kjörfundar skorti það umslag fyrir utankjörfundaratkvæði sem lög krefjast að fylgi hverju atkvæði.


Hvers vegna þetta skiptir máli
Sumir kunna að halda því fram að tæplega 26.901 atkvæði hefðu ekki getað breytt úrslitum kosninganna í ríki þar sem Donald Trump „tapaði“ með meira en 150.000 atkvæða mun og John James var „sigraður“ af Gary Peters í öldungadeildarkosningunum með 92.335 atkvæða mun á landsvísu innan ríkisins. En ef sama mynstur – þar sem 15,43% atkvæða utan kjörfundar væru án tilskilins fylgiumslags – hefði endurtekið sig í öllum borgum Michigan þar sem demókratar njóta mikils fylgis, hefði það vel getað breytt úrslitum kosninganna.
Í raun þýðir hvert atkvæði sem er stolið í Detroit að atkvæði lögmæts kjósanda annars staðar í ríkinu vegur minna eða fellur út. Þessi 26.901 utankjörfundaratkvæði í Detroit, sem voru talin með án þess umslags sem lög krefjast, jafngilda í reynd öllum utankjörfundaratkvæðum sem greidd voru árið 2020 í fjölda stórra, meðalstórra og smærri sveitarfélaga víðs vegar um Michigan.
Í nóvember 2020 voru alls áætluð 26.920 utankjörfundaratkvæði greidd í sjö litlum, meðalstórum og stórum borgum í Michigan:
- Gaylord, þar sem hátt hlutfall íbúa er í virkri herþjónustu eða fyrrverandi hermenn – um 2.720 utankjörfundaratkvæði.
- Traverse City – 6.900.
- Lake Orion og Clarkston samanlagt – 4.300.
- Hillsdale – 2.300.
- Mackinac City – 700.
- Bay City – 10.000.
Sama hvar þú býrð innan ríkis, þá eru stolin atkvæði stolin frá öllum íbúum þess ríkis. Og þegar um alríkiskosningar er að ræða eru þau að lokum stolin frá hverjum einasta lögmætum kjósanda í Bandaríkjunum.
Á hverju umslagi fyrir utankjörfundaratkvæði í Detroit var límdur miði með heimilisfangi sem átti að hafa verið prentaður af skrifstofu kjörstjóra Detroit og sendur hverjum þeim sem hafði fyllt út umsókn um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar. Rannsóknarteymið greindi um það bil fimm til sex mismunandi gerðir af slíkum merkimiðum á umslögunum, sem vekur ýmsar mikilvægar spurningar: Hvar voru þessir merkimiðar prentaðir og hver festi þá á umslögin?
Rannsóknarteymið mun afhenda öll gögn til þar til bærra yfirvalda
Janice Winfrey, kjörstjóri borgarinnar Detroit, og Jocelyn Benson, utanríkisráðherra Michigan, sem býður sig fram til ríkisstjóra í komandi kosningum og mun jafnframt hafa umsjón með framkvæmd þeirra, þurfa að bera ábyrgð á gjörðum sínum. Og hvað varðar ábyrgð, hvað með Daniel Baxter, háttsettan embættismann hjá kosningaskrifstofu Detroit, sem bar ábyrgð á stjórnun talningar utankjörfundaratkvæða, hafði yfirumsjón með kosningastarfsmönnum, samræmdi framkvæmd talningarinnar og leysti úr rekstrarlegum verkefnum meðan á talningu stóð? Og hvað með Chris Thomas, sem sneri aftur úr starfslokum árið 2017 sem kosningastjóri Michigan (Director of Elections) til að taka við starfi sem yfiráðgjafi Janice Winfrey, kjörstjóra Detroit? Báðir höfðu þeir yfirumsjón með talningu og úrvinnslu utankjörfundaratkvæða við hvert talningarborð.
Eigum við virkilega að trúa því að enginn – hvorki Janice Winfrey, kjörstjóri Detroit, né kosningastarfsmenn undir hennar stjórn, né yfirmenn talningarinnar, Daniel Baxter og Chris Thomas, né að lokum utanríkisráðherra Michigan, Jocelyn Benson – hafi vitað neitt um þetta mikla misræmi á milli fjölda utankjörfundaratkvæða og fjölda þeirra umslaga sem áttu samkvæmt lögum að fylgja þeim?
Meira um kosningasvindlið í Bandaríkjunum kemur síðar.
