ESB neitar að fella úr gildi eina einustu reglugerð sem byggist á svindlinu
Spilaborg hins mikla loftslagssvindls er að hrynja. Loftslagsprestastétt Sameinuðu þjóðanna hefur loks viðurkennt það sem efasemdarmenn hafa hrópað árum saman: uppáhaldsspá þeirra um heimsendi, RCP8.5* (sjá skýringu neðanmáls) – sú sem spáði hamfarahlýnun, flóðum, skógareldum og hungursneyð sem myndu binda endi á siðmenninguna nema við eyðilegðum hagkerfi okkar með Grænum nýjum samningum (Green New Deal) – er „ólíkleg“. Fölsuð. Ruslvísindi seld sem heilagur sannleikur.
En hér er hin raunverulega sprengja sem falsfréttamiðlarnir vilja ekki snerta: Evrópusambandið, þessi uppblásna skrifræðisskepna sem kyrkir borgara sína með Núll-brjálæðinu, hefur ekki dregið til baka eitt einasta skjal, enga „vísindaskýrslu“, enga reglugerð eða neina skattfjármagnaða hræðsluáróðursherferð sem byggir á þessari vantrúverðugu ævintýrasögu. Ekki eina einustu. Billjónir í styrki, eyðilagðar atvinnugreinar, síhækkandi orkureikningar og bændur í uppreisn á götum úti – allt reist á grunni lyga.
Stóra lygin sem knúði áfram græna gróðabrallið
Í meira en áratug byggðu embættismenn ESB hjá Umhverfisstofnun Evrópu (EEA), Sameiginlegu rannsóknarmiðstöðinni (JRC), Climate-ADAPT og jafnvel Seðlabanka Evrópu á RCP8.5 sem sína uppáhalds „hálosunar“-martröð.
- Kort af hækkun sjávarborðs? RCP8.5.
- Spár um öfgakennt eldhættuveður? RCP8.5.
- Hitabylgjur, þurrkar og heimsendaflóð? Allt RCP8.5.
- PESETA-verkefnin sem spáðu hörmungum fyrir landbúnað, strandsvæði, orkumál og ferðaþjónustu? Beint úr RCP8.5-handbókinni.
- Álagspróf banka? Auðvitað.
Þessir „sérfræðingar“ ýktu ómögulega framtíðarsýn – allt til að réttlæta Evrópska græna samninginn (European Green Deal), Fit for 55-brjálæðið, kolefnisgjöld, skylduinnleiðingu rafbíla, bann við ákveðnum hitakerfum og afiðnvæðingu sem er að rústa Evrópu.
Roger Pielke Jr. orðaði þetta vel þegar hann sagði að þessar sviðsmyndir hefðu skapað „ómögulega framtíð“ sem engu að síður réðu stefnumótuninni. Núna er sviðsmyndateymi IPCC að leggja RCP8.5/SSP5-8.5 til hliðar í hljóði fyrir næstu matsskýrslu vegna þess að hún er orðin of fjarlæg raunveruleikanum.
ESB mætir ísköldum raunveruleika: Allt sem sagt var reyndist rangt
Loftslagstrúboðarnir í Brussel reyna núna að bjarga sér. Þeir halda því fram að hægt sé að leggja RCP8.5 niður þökk sé sigurgöngu endurnýjanlegrar orku (vindorku og sólarorku, auðvitað) og framfara í stefnumótun.
Hrein ímyndun.
Metlosun CO₂: Heimurinn losaði meira kolefni frá jarðefnaeldsneyti árið 2025 en nokkru sinni fyrr – nýtt met. Árið 2026 stefnir í hið sama. Losun heldur áfram að aukast. Kína, Indland og stór hluti heimsins taka ekki þátt í þessum sjálfseyðingarleik.
Endurnýjanleg orka (sól og vindur)? Aðeins um 3% af frumorkunotkun heimsins. Ekki bara rafmagnsframleiðsla – heldur frumorka, það sem í raun knýr siðmenninguna áfram.
Vind- og sólarorka sem staðgenglar jarðefnaeldsneytis og kjarnorku eru óstöðugar lausnir. Raunverulegur kostnaður kerfisins – varaafl, uppfærslur raforkuneta og dreifingarkerfi – gerir þær að dýrustu orkugjöfum heims. Þær eru ekki að leysa jarðefnaeldsneyti af hólmi í stórum stíl. Þær eru dýrar viðbætur.
Gögn ESB sjálfs og alþjóðlegar tölur staðfesta það: „Endurnýjanlega byltingin“ er tálsýn sem lifir á styrkjum. Losun heldur áfram að aukast. Heimurinn er ekki á þeirri lágkolefnisbraut sem þessi líkön gerðu ráð fyrir. RCP8.5 var ekki aflífað vegna grænnar dyggðar – hún var frá upphafi ótengd því hvernig mannkynið notar í raun orku.
Reglugerðaveldi ESB stendur óhaggað
Hvert áhrifamat, hver aðlögunaráætlun og hver hræðsluáróðursyfirlýsing sem vitnar í þetta rusl stendur enn sem opinber sannleikur. Hvers vegna?
Vegna þess að viðurkenning á svindlinu myndi þýða að Græni samningur ESB yrði felldur úr gildi. ESB neyddist til að viðurkenna að lífsviðurværi fólks hafi verið eyðilagt að óþörfu og horfast í augu við reiði almennings sem þegar situr uppi með orkufátækt og síhækkandi kostnað.
Þetta er stærsta stjórnmálasvindl sögunnar
Hugsið ykkur:
- Billjónir hafa farið til spillis.
- Orkufátækt breiðist út um Evrópu.
- Atvinnugreinar flytja til landa sem hlæja að Núll-markmiðinu.
- Bændur loka vegum vegna þess að þeir geta ekki keppt við geðveikar reglugerðir sem byggja á fölskum líkönum.
Og „sérfræðingarnir“ sem seldu þetta?
Þeir halda áfram að innheimta launin sín, halda áfram að krefjast meiri valda og halda áfram að stimpla efasemdarmenn sem „afneitara“. Háttsettir embættismenn ESB eru orðnir svo veruleikafirrtir að þeir ráðast á vísindamenn sem þora að segja sannleikann.
Það eru ekki vísindi – þetta er sértrúarsöfnuður.
Hræðsluáróður fyrir loftslagsaðdáendur
IPCC hefur nú afhent sönnunargögnin. RCP8.5 var aldrei raunhæf grunnsviðsmynd – hún var hræðsluáróður ætlaður til að hræða stjórnmálamenn til að afhenda Brussel og Sameinuðu þjóðunum fullveldi og peninga. Evrópa á betra skilið. Borgarar eiga rétt á endurgreiðslu. Atvinnulífið á rétt á því að vitlausum reglum verði aflétt. Og skrifræði ESB á rétt á uppgjöri.
Kominn er tími til að henda öllum núll-losunar-spilaborgum sem reistar voru á þessu svindli.
Áður en Evrópu verður gjaldþrota – og Bandaríkin hugsanlega, kannski þegar á morgun. Hin „ólíklega“ sviðsmynd er dauð. Stjórnmálin sem byggjast á henni? Þau eru enn mjög lifandi – og valda enn þá skaða.
VAKNIÐ!
* Sviðsmynd fyrir þróun styrks gróðurhúsalofttegunda og geislunarálags í andrúmsloftinu
RCP stendur fyrir Representative Concentration Pathway sem mætti þýða sem sviðsmynd fyrir styrk gróðurhúsalofttegunda og geislunarálags í andrúmsloftinu. Í loftslagsfræðum eru RCP-sviðsmyndir ekki spár heldur mismunandi forsendur um framtíðarlosun gróðurhúsalofttegunda og áhrif þeirra á orkuflæði jarðar.
Helstu sviðsmyndirnar voru:
- RCP2.6 – mjög lítil losun
- RCP4.5 – miðlungs losun
- RCP6.0 – hærri losun
- RCP8.5 – mjög mikil losun
Talan vísar til geislunarálags árið 2100, mælt í vöttum á fermetra (W/m²). Þannig merkir: RCP8.5 = geislunarálag upp á 8,5 W/m² árið 2100
Þetta var sú sviðsmynd sem oft var kölluð:
- „worst case scenario“ (versta sviðsmynd)
- „high emissions scenario“ (há-losunarsviðsmynd)
- eða einfaldlega „RCP8.5“
