Það er ljótur leikur og alls ekki í þágu hagsmuna Íslendinga að vera að etja þjóðinni í slag um ESB. Þjóðin hefur nóg með sitt, að afla sér tekna til framfærslu. Að rúmlega 15% flokkur fái því ráðið að vegferð þjóðarinnar sé stöðvuð og snarlega breytt til að eyða öllum kröftum í tilgangslausar umræður um ágæti Evrópusambandsins er í andstöðu við lýðræðið. Stærsti flokkur ríkisstjórnarinnar lofaði því fyrir síðustu alþingiskosningar að ekki yrði farið í þá vegferð sem núna er búið að kasta þjóðinni óspurðri í.
Bæði utanríkisráðherrann og forsætisráðherrann eru svo blindaðir af dýrðarljóma Evrópusambandsins að fara verður til Kína og Norður-Kóreu til að finna sambærilegar trúarjátningar gagnvart yfirvaldinu. Að Evrópusambandið sé himnaríki á jörðu er því miður ekki reynsla íbúa sambandsins. Daglegar fréttir af morðum og nauðgunum sem hafa sprengt alla mæla eftir að hömlulaus innflutningur hófst til Evrópu hrjá líf íbúa meginlandsins.
Í Svíþjóð hefur draumurinn um rauða fallega sumarhúsið með hvítmáluðum hurðum og gluggakörmum horfið í reykjarsvælu skot- og sprengjuárása. Þótt takist að kremja fram stuðning við Evrópusambandið á pappírnum, þá er veruleikinn allt annar hjá almenningi. Spyrjið Svía hvað þeim finnst um glæpagengin og áhrif þeirra á efnahag og stjórnmál landsins.
Hryllilegar fréttir frá Þýskalandi og Frakklandi um dagleg morð, nauðganir og aðra ofbeldisglæpi eru svo þyngjandi að tárum tekur. Hvert og eitt mannslíf sem tekið er á slíkan hátt, skrifast á reikning þeirra stjórnmálamanna sem skapað hafa ástandið.
Þess vegna hefur almenningur í Þýskalandi, Frakklandi og Svíþjóð og í flestum öðrum löndum ESB, þar sem ofbeldi hefur verið innflutt og leyft að ná fótfestu, vaknað til vitundar og bregst við með stuðningi stjórnmálaafla eins og Valkosts fyrir Þýskaland og Þjóðarhreyfingar Marine Le Pen í Frakklandi. Kosningar eru í Þýskalandi í næsta mánuði sem gætu orðið sögulegar langt út fyrir Þýskaland. Ef Valkostur fyrir Þýskaland kemst í stjórn mun Þýskaland yfirgefa evruna og ganga úr Schengen.
Það er því meira en bara tímaskekkja að Íslendingar séu teymdir að kjörborðinu til að segja já eða nei við ESB, sem almenningur í Evrópu vill kasta af herðum sér. Ásetningur Viðreisnar og Samfylkingarinnar kemur til vegna markmiðs leiðtoga flokkanna um eigin ávinning erlendis við inngöngu Íslands í ESB. Hér er um raunverulega íslenska útrásarvíkinga að ræða sem vilja úthýsa sjálfu lýðveldinu í hendur ókjörinna búrókrata í Brussel.
Sjálfsagt mun bæði Þorgerði og Kristrúnu dafna vel í stöðu þingmanna og jafnvel ef æðsti draumurinn rætist – í stöðu kommissjóners hjá ESB.
En hvers á þjóðin að gjalda?
Á persónulegur ávinningur tveggja kvenna að kosta þjóðina lifibrauðið og réttinn til að ákveða örlög sín sjálf?
Kjósum Nei við slíkri vegferð á laugardaginn.
