Lesendur Gateway Pundit: 95% vilja að Ísland hefji ekki aðildarviðræður að nýju um fyrirsjáanlega framtíð

Bandaríski fréttamiðillinn The Gateway Pundit fjallar um íslenska NEI-ið sem enn eitt áfallið fyrir þá sem vilja aukinn samruna ríkja. Miðillinn bauð lesendum sínum jafnframt að velja hvenær Ísland ætti næst að íhuga að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Af þeim 141 sem höfðu tekið afstöðu þegarþessi frétt er skrifuð, þá völdu 95% kostinn „ekki um fyrirsjáanlega framtíð“.

Bandaríski miðillinn The Gateway Pundit fjallar um niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar á Íslandi undir fyrirsögninni „Ísland segir NEI við aðild að Evrópusambandinu – enn eitt áfallið fyrir hnattvæðingarelítuna.“. Þar segir að sigur NEI-hliðarinnar sé verulegt áfall fyrir íslensku ríkisstjórnina og þá viðleitni að endurvekja aðildarferlið sem stöðvaðist fyrir meira en áratug.

Reykjavík sagði já – landsbyggðin nei

Miðillinn vekur athygli á miklum landfræðilegum mun í niðurstöðunum. Meirihluti kjósenda í Reykjavíkurkjördæmunum studdi endurupptöku viðræðna, en annars staðar á landinu var niðurstaðan öfug. Sérstaklega sterkt hafi NEI-ið verið á landsbyggðinni.

The Gateway Pundit segir andstæðinga aðildar hafa lagt áherslu á að Ísland sé þegar náið tengt Evrópusambandinu í gegnum EES og geti notið þess samstarfs án þess að færa frekara fullveldi til Brussel.

Sjávarútvegurinn hafi verið eitt stærsta deilumálið ásamt landbúnaði, efnahagsmálum, innflytjendamálum og möguleikum Íslands til að ráða eigin löggjöf.

Minnt á fyrri aðildarviðræður

Í greininni er rifjað upp að Ísland sótti um aðild að ESB árið 2009 í kjölfar bankahrunsins og að formlegar viðræður hófust árið eftir. Þær voru síðar stöðvaðar og árið 2015 tilkynntu íslensk stjórnvöld að Ísland ætti ekki lengur að teljast umsóknarríki. Miðillinn bendir jafnframt á að Samfylking Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra hafi viljað nánari tengsl við Evrópusambandið en forsætisráðherra hafi fyrir kosningarnar heitið því að virða niðurstöðu þjóðarinnar.

Greinarhöfundurinn Ben Kew lýkur þeirri umfjöllun með efasemdum og segir að tíminn muni leiða í ljós hvort það loforð verði efnt.

Lesendur spurðir: Hvenær ætti Ísland að reyna aftur?

Athyglisverður hluti síðunnar er síðan sérstök valkönnun sem birtist með greininni. Lesendur eru spurðir:

„Hvenær ætti Ísland næst að íhuga að hefja aðildarviðræður við ESB að nýju?“

Boðið er upp á fjóra valkosti:

  • Innan næstu tveggja ára.
  • Innan næstu 5–10 ára.
  • Aðeins ef miklar breytingar verða á efnahags- eða öryggismálum.
  • Ekki um fyrirsjáanlega framtíð.

Þegar niðurstaðan sem Þjóðólfur hefur undir höndum var skráð höfðu 141 lesandi tekið afstöðu. Af þeim völdu 134, eða 95,04%, „ekki um fyrirsjáanlega framtíð“.

Fimm, eða 3,55%, vildu aðeins að málið yrði tekið upp að nýju ef miklar breytingar yrðu á efnahags- eða öryggismálum. Aðeins einn valdi að hefja viðræður innan tveggja ára og einn innan 5–10 ára. Þessi lesendakönnun endurspeglar aðeins afstöðu þeirra lesenda miðilsins sem kusu að taka þátt á þeim tímapunkti sem Þjóðólfur skrifaði fréttina. Niðurstaðan er engu að síður afgerandi innan þess hóps:

95% þeirra sem tóku afstöðu vildu að Ísland hæfi ekki aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju um fyrirsjáanlega framtíð