Leiðtogar heims fara villu vegar

Blaðamaðurinn og rithöfundurinn Graham Hancock sem er sérfræðingur í fornum siðmenningum segir heiminn á barmi „kjarnorkutortímingar“ vegna „heimsku“ og „fáfræði“ vanþroskaðra leiðtoga heimsins í dag. Hanock segir leiðtoga heims haga sér eins og „taumlausa unglinga.“

Hinn heimsþekkti rithöfundur Graham Hancock segir skoðun sína á leiðtogum heimsins í dag og hvernig þeir haga sér í viðtali við Jesse Michels (sjá YouTube að neðan).

Samkvæmt Hancock hefur mannkynið fengið „frábæra gjöf“ frá algeimi en meðhöndlar hana ekki mjög vel. Í staðinn eru menn uppteknir við „gagnkvæma eyðileggingu.“ Hancock segir:

„Þeir segja: Ef þú skýtur kjarnorkuvopnum á mig, þá skjóta kafbátarnir mínir kjarnorkuvopnum á þig og útrýma þér jafnvel þótt ég sé dauður. Þetta er barnaleg hegðun. Þetta er hegðun taumlausra unglinga.“

„Þetta er það sem allir leiðtogar heimsins í dag eru. Ég ber ekki virðingu fyrir neinum einasta af leiðtogum heimsins í dag. Mér er alveg sama úr hvaða flokki þeir koma. Mér er alveg sama fyrir hvaða land þeir eru í forystu. Ég ber enga virðingu fyrir neinum þeirra. Þeir eru ekki leiðtogar, þeir leiða fólk villu vega. Þeir fylgja eigin stefnu og blekkja fólk til að styðja sig. Ef mannkynið á að komast af sem tegund, þá þurfum við koma með alveg nýja aðferð til að lifa í heiminum. Ef það skiptir nú einhverju máli fyrir nokkurn mann. Það skiptir máli fyrir mig. Ég á níu barnabörn. Ég vil ekki að þau vaxi upp í heimi sem verður skyndilega eyðilagður í kjarnorkuhelför vegna heimsku, fáfræði, ábyrgðarleysis og karlrembu þessara táninga sem búa í gömlum líkömum og stjórna heiminum í dag.

Fara efst á síðu